Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Hraunsnefsöxl Gönguleið

Hraunsnefsöxl er ein af földu perlum Borgarfjarðar. Þessi fallega 6 km gönguleið er ótrúlega aðgengileg þrátt fyrir hrikalegt yfirbragð og hækkunin um 300 metrar. Leiðin liggur um fjölbreytt og fallegt landslag upp á fjallsbrúnina, þar sem stórbrotið útsýni yfir Norðurárdal, Baulu, Langjökul, Þórisjökul, Eiríksjökul og nærsveitir tekur á móti göngufólki.

Nánari upplýsingar

Landshluti
Vesturland, Borgarbyggð
Upphafspunktur
N64°47.2711 W021°30.3772
Erfiðleikastig
Þrep 2 - Miðlungs leið
1 2 3 4
Merkingar
Stikuð - merkt leið með stiku, staur eða stöng með reglulegu millibili
Tímalengd
2 - 3 klukkustundir
Yfirborð
  • Möl
  • Gras
  • Stórgrýtt
  • Þýft
  • Blandað yfirborð
Hindranir
Þrep - Trappa, stallur, stig eða lágur hjalli sem þarf að stíga upp á
Hættur
  • Berghrun - Grjót getur fallið úr klettum, skriðum og fjallshlíðum
  • Vindstrengir - Leið þekkt fyrir kröftuga vindstrengi
  • Hálka - Hál og sleip leið
Þjónusta á leiðinni
  • Salerni
  • Sorplosun
Hraunsnef sveitahótel er við gönguleið
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Gönguleið er lokuð fyrstu tvær vikur í september vegna smalamennsku
Gönguleið er lokuð fyrstu tvær vikur í september vegna smalamennsku
Hraunsnefsöxl hefur yfir sér hrikalegt og jafnvel óárennilegt yfirbragð, en gönguleiðin kemur skemmtilega á óvart. Hún er fjölbreytt, falleg og ekki sérstaklega krefjandi fyrir vant göngufólk. Að stíga loks upp á þessar hrikalegu og tilkomumiklu fjallsbrúnir sem hafa blasað við ferðafólk í gegnum árin þegar leiðin hefur legið um Borgarfjörð og norður á bóginn. Ef lagt er af stað frá Hraunsnefi er leiðin um 6 kílómetrar að lengd og hækkunin tæplega 490 metrar. Gönguleiðin er stikuð alla leiðina. Þegar upp er komið er hægt að ganga góðan hring, setjast niður með nesti og njóta stórbrotins útsýnis. Horft er yfir Norðurárdal, Borgarfjörð, Baulu, Langjökul, Þórisjökul, Eiríksjökul og nærliggjandi sveitir. Gönguleiðin er merkt með fjölmörgum stikum sem auka öryggi göngufólks og mikilvægt er að viðhalda þeim. Hraunsnefsöxl er sannarlega ein af földu perlum Borgarfjarðar og upplifun sem vert er að uppgötva.