Eiríksstaðir gönguleið Fræðslustígur
Á Eiríksstöðum í Dölum eru fornar rústir sem líklega eru bær Eiríks rauða Þorvaldssonar og konu hans Þjóðhildar Jörundardóttur. Rústir bæjarins eru friðlýstar fornminjar. Gönguleiðir eru tengdar við upplýsingamiðstöð, friðlýstar minjar og tilgátubæinn.
Nánari upplýsingar
Landshluti
Vesturland, Dalabyggð
Upphafspunktur
N65°03.5023 W021°32.1731
Merkingar
Skilti við upphaf leiðar
Tímalengd
30 mínútur
Yfirborð
- Bundið slitlag
- Hellulögn
Hættur
Engar hættur á leiðinni
Þjónusta á leiðinni
- Salerni
- Sorplosun
Mögulega er hægt að kaupa ferðaleiðsögn um ferðaleiðina
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Keyrður er vegur nr. 60 (Vestfjarðarvegur) en beygt inn á veg nr. 586 (Haukadalsveg) og keyrt inn að bílastæði við Eiríksstaði. Bílastæði er veglegt og er þar að finna þjónustuskála, ásamt salerni og upplýsingaskiltum. Gönguleiðir liggja að tilgátuhúsi en einnig að minjum á svæðinu. Gönguleið er að hluta með malarundirlagi og hluta með gangstéttarhellum. Skammt vestan við rústina á Eiríksstöðum var reistur tilgátubær sem vígður var árið 2000 í tilefni þess að 1000 ár voru liðinn frá landafundum Leifs heppna í Ameríku.
Að Eiríksstöðum er lifandi safnastarfsemi. Starfsfólk er klætt að fornum sið og fræðir gestkomandi um lífið fyrir þúsund árum, gamla verkmenningu og búskaparhætti. Jafnframt er hægt að skoða handverk, vopn og ýmsa muni frá sama tíma. Þá eru söguskilti á svæðinu og stytta af Leifi Eiríkssyni eftir Nínu Sæmundsson.