Laugar í Sælingsdal gönguleið. Svört leið Gönguleið
Laugar í Sælingsdal er þekktur áningar-og áfangastaður í Dalabyggð. Tjaldsvæði er mikið notað af erlendum og innlendum gestum og Dalahótel er vinsælt hótel sem býður gestum velkominn allt árið.
Fjölbreytt útsýni á gönguleið, fjölbreytt undirlag gönguleiðar og fjölbreytt umhverfi gönguleiðar getur gefið gestum sterka upplifun. Gönguleiðin Svört leið inn í Laugum í Sælingsdal er vel merkt, vel greinileg og hefur fallegt umhverfi og útsýni. Leiðin er hluti af skemmtilegu og fjölbreyttu gönguleiðakerfi sem gestir geta valið um á Laugum í Sælingsdal.
Nánari upplýsingar
Landshluti
Vesturland, Dalabyggð
Upphafspunktur
N 65°14.7453 W 021°48.2210
Merkingar
- Stikuð - merkt leið með stiku, staur eða stöng með reglulegu millibili
- Skilti við upphaf leiðar
- Vörðuð leið með hlöðnum steinum
Tímalengd
2 - 3 klukkustundir
Yfirborð
- Möl
- Gras
- Stórgrýtt
- Blandað yfirborð
Hindranir
Þrep - Trappa, stallur, stig eða lágur hjalli sem þarf að stíga upp á
Hættur
Berghrun - Grjót getur fallið úr klettum, skriðum og fjallshlíðum
Þjónusta á leiðinni
- Salerni
- Sorplosun
- Tjaldsvæði
Dalahótel og sundlaug
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Sælingsdalur er grösugur dalur, umluktur lágum fjöllum til norðvesturs frá botni Hvammsfjarðar.
Löngum var skólasetur í Sælingsdalslaug eða á Laugum og góð aðstaða til íþróttaiðkunar. Að Laugum er 25 metra útilaug ásamt heitum pottum, gufubaði og vaðlaug.
Dalahótel er fjölskylduhótel sem staðsett er aðeins einum km frá þjóðveg nr. 60 en frá hótelinu er hægt að finna fjölmargar fallegar gönguleiðir, ásamt Gruðrúnarlaug, sem er náttúrulaug sem er staðsett rétt ofan við hótel bygginguna.
Guðrúnarlaug er nefnd eftir Guðrúnu Ósvífursdóttur, ein af aðalsöguhetjum Laxdælu sögu en hún var fædd og uppalin á Laugum. Mikill jarðhiti er á svæðinu, heitar uppsprettur koma undan fjallinu og er heita vatnið notað til að hita upp öll hús á svæðinu.
Gönguleiðakort er við hótel byggingu og er þar að finna fjórar gönguleiðir: Gul leið, Græn leið, Svört leið og Rauð leið.