Ytri Tunga gönguleið Gönguleið
Ströndin við Ytri Tungu er einn besti selaskoðunarstaður á Íslandi. Selir sækja í grýtta ströndina þar sem þeir finna fullkomna blöndu af hvíldarstað, föstu landi og skjóli fyrir öldum á milli tanganna sem ganga þar fram. Mikið hefur verið lagt í göngustíga, frá stóru bílastæði út í fjörurnar.
Nánari upplýsingar
Landshluti
Vesturland, Snæfellsbær
Upphafspunktur
N 64°48.2310 W 023°04.8595
Merkingar
- Stikuð - merkt leið með stiku, staur eða stöng með reglulegu millibili
- Skilti við upphaf leiðar
Tímalengd
30 mínútur
Yfirborð
Möl
Hindranir
- Þrep - Trappa, stallur, stig eða lágur hjalli sem þarf að stíga upp á
- Brú - mannvirki sem ber stíg/slóða/veg yfir vatnsfall, sund, gil eða aðra hindrun
Hættur
- Sterkir straumar - s.s á, sjór eða vötn
- Vindstrengir - Leið þekkt fyrir kröftuga vindstrengi
- Sjávarföll - Breytileg staða sjávar, flóð og fjarða
Þjónusta á leiðinni
Sorplosun
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Hundar ávallt í bandi
Hundar ávallt í bandi
Vinsamlegast hafið eftirfarandi í huga:
Farið ekki nær selunum en 50 metra, 100 metra ef selurinn er með kópa.
Ef selurinn geltir, hreyfir sig eða virðist skelkaður færið ykkur þá fjær.
Urtur yfirgefa oft kópa sína tímabundið til að afla matar. Þá má alls ekki nálgast kópana því það getur fælt urtuna frá og truflað matargjöf.
Ekki fara á milli sels og sjávar, því selurinn þarf að hafa greiðan aðgang að vatni til að líða vel.
Ekki vera með læti, notaðu hægar og rólegar hreyfingar til að trufla ekki dýrin. Forðastu hávaða og talaðu lágt.
Ekki henda neinu í námunda við selina, hvorki steinum, spýtum, mat eða rusli.
Ekki nota flass við myndatökur.
Dreifið úr hópum svo selunum finnist þeim síður ógnað. Ef það er stór hópur á svæðinu, hinkraðu eftir að einhverjir fari - eða labbaðu í hina áttina. Hundar skulu ávalt vera í taumi.