Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Foreldrafræðsla í Tónbergi

13. október kl. 17:30-19:00

Þriðjudaginn 13. Október kl. 17:30 fer fram foreldrafræðsla í Tónbergi á Akranesi.

Á þessu fræðandi foreldrakvöldi fjalla sérfræðingar frá Netvís, Kristín Ómarsdóttir og Skúli Bragi Geirdal, um skjátíma, samfélagsmiðla og stafrænt umhverfi barna undir yfirskriftinni "Stolin athygli leitar eiganda síns".
Einnig mun Ársæll Már Arnarson, prófessor við Háskóla Íslands, ræða listina að vera "leiðinlegt" foreldri og mikilvægi þess að setja skýr mörk þótt það sé stundum erfitt.

Fræðandi og hagnýtt erindi fyrir foreldra, forráðamenn og alla sem láta velferð barna sig varða.

GPS punktar

N64° 19' 16.016" W22° 4' 12.421"

Staðsetning

Tónlistarskóli Akraness