Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Með þangið í hárinu

9.-30. júní
Samsýning Kvenna Listavefs "Með þangið í hárinu"
Verið velkomin á opnun í Akraneesvita á annan í hvítasunnu 9.6.2025 kl 14.00- 17.00
Listakonurnar sem kalla sig Kvenna Listavefur eru:
Katrín Snæhólm Baldursdóttir, Svíþjóð, Lind Draumland Völundardóttir, Ísland, Lilja Björk Egilsdóttir, Holland, Hulda Leifsdóttir, Finnland og Steinunn Helga Sigurðardóttir, Danmörk.
Sköpunin og lífsheimspekin hefur tengt þær saman frá upphafi. Þær búa í sitthvoru landinu en tala reglulega saman á alnetinu og hafa gert það síðan í júlí 2021. Samtölin eru þeim innblástur. Þær eu ekki gamlar vinkonur, heldur hafa þær kynnst í gegn um þessa vinnu. Vinskapur þeirra tilkomin vegna listarinnar og endurspeglar þann kvenlega veruleika þar sem tilfinningar, líf og list renna saman.
Sýningin stendur yfir frá 9.6.- 30.6. 2025
Allir hjartanlega velkomnir að sjá sýninguna okkar. Sjáumst í Vitanum!