Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Pósthlaupið

26. júlí

Pósthlaupið er 50 km utanvegahlaup frá Hrútafirði yfir í Búðardal (600 m hækkun, 2 ITRA-stig). Í boði er einnig að hlaupa hálfa leið um 26 km (1 ITRA-stig), 12 km leið eða síðasta spölinn í Búðardal 7 km. Hlaupið fer fram laugardaginn 26. júlí.

Leiðarlýsing
Pósthlaupið er um 50 km utanvegahlaup sem hefst við Bálkastaði í Hrútafirði. Hlaupin er gömul landpóstaleið yfir Haukadalsskarð vestur í Haukadal og sem leið liggur niður dalinn, meðfram Haukadalsvatni, niður á reiðstíg við Vestfjarðaveg í Dölum og eftir honum og Vestfjarðavegi alla leið í Búðardal.

  • 50 km hlaup: Fyrstu 15 km hlaupsins eru nokkuð á fótinn en eftir það er leiðin meira og minna niður á við eða flöt. Hækkunin er samtals um 600 m og hæsti punktur er í Haukadalsskarði.
  • 26 km hlaup: Nokkurn veginn á miðri leið í 50 km hlaupinu er Kirkjufellsrétt (nálægt bænum Smyrlhóli í Haukadal) og þar verður 26 km hlaupið ræst um það bil sem von er á hlaupurum úr Hrútafirði.
  • 12 km hlaup: 12 km hlaupið er nýjung og hefst í malarnámunni skammt frá veiðihúsinu við Haukadalsá.
  • 7 km hlaup: Loks er hægt að velja síðasta legginn, um 7 km leið frá Búðardalsflugvelli á Kambsnesi yfir í Búðardal. Hlaupið verður ræst þegar von er á hlaupurum úr lengri hlaupunum.
  • Meðan á hlaupinu stendur geta yngsta kynslóðin og áhangendur hennar skottast Póststubbinn, stuttan hring í hjarta Búðardals, og þegið veitingar og glaðning þegar komið er í mark.

Sætaferðir verða úr Búðardal að rásmörkum við Bálkastaði, Kirkjufellsrétt, malarnámuna og Búðardalsflugvöll. Á leiðinni verður boðið upp á drykkjarstöðvar og brautargæslu. Í marki verður boðið upp á hollar veitingar úr héraði.

Nánari upplýsingar og skráning á www.hlaup.is eða hér: Pósthlaupið 2025

GPS punktar

N65° 6' 35.437" W21° 46' 0.341"