Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

SALKA – ástin og dauðinn Landnámssetur Íslands

13. febrúar - 29. mars

SALKA – ástin og dauðinn

eftir Unni Ösp Stefánsdóttur

Leikverk byggt á fyrri hluta skáldsögu Halldórs Laxness, Sölku Völku, Þú vínviður hreini

Í tilefni af tuttugu ára afmæli Landnámsseturs Íslands í Borgarnesi taka Þjóðleikhúsið og Landnámssetrið höndum saman og bjóða upp á nýjan einleik. Unnur Ösp Stefánsdóttir mun semja og flytja nýtt leikverk byggt á skáldsögu Halldórs Laxness Sölku Völku á Sögulofti setursins.

„…en tvær sálir geta verið svo fjarlægar hvor annarri jafnvel þó þær hafi einusinni búið í sama líkama.“

Salka Valka er ein eftirminnilegasta persóna Halldórs Laxness. Í sýningunni mun Unnur Ösp þræða sig í gegnum sögu hennar, umvafin tónlist úr plötusafni Halldórs Laxness sem var skáldinu innblástur við skrif bókarinnar. Í návígi við áhorfendur kallar Unnur fram stórbrotnar persónur sögunnar, með magnaðan texta Laxness að vopni. Í gegnum hættuleg en heillandi sambönd persónanna ætlar Unnur að leita að Sölku í sér og Sölku í okkur öllum.

GPS punktar

N64° 32' 7.658" W21° 55' 21.783"