Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Sundlaug Búðardal

- Þjónustur

Íþróttamiðstöðin í Búðardal

Sundlaug-Líkamsrækt-Íþróttasalur

Í hjarta Búðardals er að finna nýja og glæsilega íþróttamiðstöð þar sem hægt er að eiga góðar stundir, hvort sem
markmiðið er slökun, hreyfing eða leikur. 

Í miðstöðinni er að finna 25 metra útisundlaug, heita potta, vaðlaug, sauna og kalt ker. Útsýnið frá sundlauginni
út á Hvammsfjörð er einstakt sem gerir miðstöðina fullkominn áningarstað fyrir þá sem vilja njóta.   

Vatnið í laugina kemur úr borholu í Reykjadal í Dölum og sveiflast hitastig sundlaugar frá 28 til 30°C á meðan heitu
pottarnir halda notalegum hita á bilinu 38 til 40°C og vaðlaug um 35°C. 

Einnig er hægt að kaupa sér aðgang að vel útbúnum líkamsræktarsal, fyrir þá sem vilja æfa í þægilegri aðstöðu eða þá sem vilja ekki missa úr æfingu á ferð um landið. Þá eru reglulegar og fjölbreyttar æfingar í íþróttasalnum á vegum íþróttafélaga og annarra hópa, fyrir íbúa á öllum aldri. 

Íþróttamiðstöðin var tekin í notkun 28.febrúar 2026. Staðsetning hennar er einstaklega hentug – örstutt er í alla
helstu þjónustu, hvort sem það er verslun, veitingastaðir, tjaldsvæði eða verkstæði. 

 Opnunartími  

Allt árið: 

Mánudaga – föstudaga: 07:00-21:00

Laugardaga og sunnudaga: 10:00-16:00  

Sundlaug Búðardal

Sundlaug Búðardal

Íþróttamiðstöðin í Búðardal Sundlaug-Líkamsrækt-Íþróttasalur Í hjarta Búðardals er að finna nýja og glæsilega íþróttamiðstöð þar sem hægt er að eiga g
Handverkshópurinn Bolli

Handverkshópurinn Bolli

Handverk unnið af fólki í og úr Dölum. Lopavörur, útskornir hlutir, hekl, prjón, tölur úr kindahornum og beinum, leirmunir og fleira. Á sumrin opið da
Búðardalur

Búðardalur

Búðardalur í Dölum er þjónustumiðstöð Dalanna. Þar er matvöruverslun, blómabúð, handverksverslun og ýmis þjónustufyrirtæki, heilsugæsla og grunn- og l
Dalahestar

Dalahestar

Dalahestar er lítið fjölskyldu rekið fyrirtæki sem bíður upp á sérsniðna reiðtúra í fallegu nærumhverfi Hvammsfjarðar. Við bjóðum einstaklingum og lit
Kastalinn Gistiheimili

Kastalinn Gistiheimili

Kastalinn býður upp á gistingu í Búðardal. Gististaðurinn stendur við svartar strendur Hvammsfjarðar og er í göngufæri við Vínlandssetur - sýning og k
Búðardalur-Laxarós

Búðardalur-Laxarós

Búðardalur í Dölum er þjónustumiðstöð Dalana en þar er að finna fjölmarga þjónustufyrirtæki, heilsugæslu og skóla. Helsta aðdráttarafl Búðardals er Ví
Vínlandssetrið Leifsbúð

Vínlandssetrið Leifsbúð

Vínlandssetrið er spennandi áfangastaður fyrir unga sem aldna, þar sem sögum af landafundum Eiríks rauða og Leifs heppna Eiríkssonar á Grænlandi, Kana

Aðrir (3)

Blómalindin Kaffihornið Vesturbraut 6 370 Búðardalur 894-6808
Dalakot Dalbraut 2 370 Búðardalur 4341644
Ólafsdalur í Gilsfirði 371 Búðardalur 371 Búðardalur 6932915