Flýtilyklar
Menning

Af nógu er að taka þegar listir og menning eru annarsstaðar, því landinn
virðist óþreytandi þegar kemur að listsköpun. Allt frá gjörningum til myndlistasýninga má
finna vítt og breytt um landið á ólíklegustu stöðum og tónleikar eru haldnir í stærri
tónlistarhúsum og jafnvel heima í stofu flytjenda.
Gestastofur
Við flestar stærri og vinsælli náttúruperlur Íslands eru gestastofur, þar sem hægt
er að nálgast upplýsingar og versla minjagripi. Gestastofur eru einnig við ýmis söfn og
menningarsetur.
Handverk og hönnun
Heilmikil gróska er í hverskonar handverki og hönnun um allt land.
Úrvalið er afar margbreytilegt og óhætt að segja að sköpunargleði landsmanna sé óþrjótandi.
Einstakt handverk og hönnunarvöru má nálgast með ýmsum hætti, meðal annars gegnum
handverksmarkaði, sérverslanir eða gegnum vefsíður listamanna.
Setur og menningarhús
Víða um land eru menningarmiðstöðvar, þar sem ýmsir listviðburðir
og fræðsla fyrir alla aldurshópa, fara fram.
Söfn
Á Íslandi eru allskonar söfn. Flest þeirra eru nokkuð hefðbundin og má þar nefna bóka,lista
og minjasöfn, önnur eru óhefðbundnari og eru tileinkuð draugum og ýmsu öðru
forvitnilegu.
Sýningar
Það er enginn skortur á hverskonar sýningum vítt og breitt um landið og þær eru
tileinkaðar öllu frá leikföngum upp í jarðskjálfta og eldgos. Listsýningar eru líka
fjölbreytilegar og þær má finna á ýmsum vettvangi.