Upplýsingar um verð
Hver var Geirmundur Heljarskinn – og hvers vegna hefur sagan um „göfugasta landnámsmanninn“ nánast dáið út?
Við bjóðum þér í einstakt ferðalag inn í söguna, innblásið af bókinni Leitin að Svarta víkingnum eftir Bergsvein Birgisson. Helgina 29.–31. maí verður gengið um slóðir Geirmundar við Breiðafjörð, á Fellsströnd og Skarðsströnd, þar sem sagan lifnar við í landslaginu sjálfu.
📍 Dagskrá
📅 29. maí – Komudagur
- Mæting á Vogi
- Kvöldfundur kl. 20:00
- Bergsveinn Birgisson, rithöfundur, segir frá Geirmundi Heljarskinn og hvernig saga hans tengist svæðinu
📅 30. maí – Skarðsströnd
- Gengið frá Skarði upp á Illþurrku
- Söguganga um svæðið (m.a. dalurinn þar sem eiginkona Geirmundar er sögð heygð)
- Skarðskirkja skoðuð
- Stoppað í Klofningi
📅 31. maí – Fellströnd & nágrenni
- Kvennahóll heimsóttur
- Ganga að Dagverðarnesi og áfram í Einarsvog
- Sögur af lendingu skips Geirmundar rifjaðar upp
- Gengið upp Vogsfjall meðfram fossi og notið útsýnis
🏡 Gisting: í boði á Vogi Country Lodge og víðar í nágrenninu – einnig velkomið að mæta á húsbílum eða með tjald.
🧭 Leiðsögn: Þórólfur Sigurðsson frá Innri-Fagradal. Þórólfur hefur séð um ferðaleiðsögn um Dalina í mörg ár og er mikill viskubrunnur um svæðið.
🚗 Akstur: Gert er ráð fyrir að fólk notist við eigin fararskjóta til að keyra að upphafsstöðum gönguleiða eða sameinist í bíla.
💰 Verð:
• Leiðsögn í tvo daga: 25.000 kr.
• Víkingatilboð í gistingu á Vogi: 2 nætur með morgunverði á Vogi: 40.000 kr.
• Tjaldsvæði: 5.000 kr. per húsbíl og/eða tjald
📞 Bókanir
- Vogur sveitasetur, Fellströnd í Dalabyggð
- Sími: 894 4396
- Netfang: vogur@vogur.org
🌊 Um Svarta víkinginn
Af hverju gleymdist einn göfgasti landnámsmaður Íslands?
Samkvæmt Bergsveini Birgissyni gæti Geirmundur Heljarskinn hafa verið of framandi, of valdamikill og of ólíkur öðrum – maður sem sótti auð sinn í verðmætar auðlindir úr náttúrunni á borð við rostunga.
Þessi helgi verður ekki bara ganga, heldur ferðalag inn í sögu, landslag og dulúð fortíðarinnar.