Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Kartöfluhátíð í Görðum

12. september kl. 14:00-16:30
(English below)
Kartöfluhátíð í Görðum • Laugardaginn 12. september.
Byggðasafnið í Görðum býður til árlegrar Kartöfluhátíðar þar sem saga, ræktun, matarmenning og menningararfur mætast í gegnum eina merkustu nytjaplöntu landsins.
Boðið verður upp á skemmtilegan fyrirlestur, kartöflukonfekt og Jarðepla Jói og Selið Grænmeti selja bæjarbúum ferskt grænmeti.
Í ár mun Ingólfur Guðnason fræða okkur um ræktun kartöflunnar.
Ingólfur Guðnason, fæddur 12. ágúst 1956, er garðyrkjufræðingur og einn af frumkvöðlum lífrænnar ræktunar á Íslandi. Hann útskrifaðist frá Garðyrkjuskólanum árið 1980 og stofnaði ásamt eiginkonu sinni, Sigrúnu Elfu Reynisdóttur, garðyrkjustöðina Engi í Laugarási árið 1985. Þar stunduðu þau meðal annars lífræna ræktun og voru brautryðjendur í ræktun ferskra kryddjurta. Ingólfur hefur einnig starfað sem kennari og brautarstjóri við Garðyrkjuskólann og komið að uppbyggingu náms í lífrænni ræktun. Fyrir frumkvöðlastarf sitt í lífrænni ræktun og kennslu var hann sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu árið 2026.
Þess má geta að fyrirlesarar hátíðarinnar síðastliðin fjögur ár hafa frætt gesti um mismunandi hluti tengda kartöflum.
🥔 Ingibjörg Gestsdóttir, þjóðfræðingur, talaði um kartöfluræktun á Akranesi. (2022).
🥔Hildur Hákonar fjallaði um sögu kartöflunnar ári seinna, með áherslu á bók sína Blálandsdrottningin og fólkið sem ræktaði kartöflurnar. (2023).
🥔 Helga Einarsdóttir þjóðfræðingur lagði áhersu á Hallærði mikla, An Gorta Mór, á Írlandi. (2024).
🥔 Las Sölvi Björn Sigurðsson rithöfundur úr bókinni Gestakomur í Sauðlauksdal, þar sem Björn Halldórssson og kartöfluútsæði koma við sögu. (2025).
Þannig hefur hátíðin þróast frá því að vera bara um Akraneskartöfluna yfir í sögu kartöflunnar í heiminu, matarsögu, hungursneyð, ræktun og íslenska menningarsögu.
----------------------------------
Eftir fyrstu Kartöfluhátíðina árið 2022 var komið upp kartöflugarði við íbúðarhúsið Sanda á safnasvæðinu. Síðan þá hafa nemendur Brekkubæjarskóla komið á hverju vori til að setja niður kartöflur og tekið þær upp að hausti. Garðurinn er því bæði lifandi minnisvarði um kartöflusögu Akraness og hluti af skóla- og safnastarfi í bænum.
Byggðasafnið í Görðum, sem stofnað var árið 1959, varðveitir og miðlar sögu Akraness og Hvalfjarðarsveitar. Kartöfluhátíðin fellur því vel að hlutverki safnsins, enda endurskapar hún hluta af þeirri sögu sem mótaði bæinn.
„Munur á Akranesi fyrr og nú er falinn í einni kartöflu.“
-------------------------------------
Potato Festival at Garðar • Saturday, September 12
Byggðasafnið í Görðum invites you to its annual Potato Festival, where history, cultivation, food culture, and heritage come together through one of Iceland’s most important crops.
Visitors can enjoy an engaging lecture, potato confectionery, and the opportunity to purchase fresh vegetables from Jarðepla Jói and Selið Grænmeti.
This year, Ingólfur Guðnason will share his knowledge of potato cultivation.
Ingólfur Guðnason, born on August 12, 1956, is a horticulturist and one of the pioneers of organic farming in Iceland. He graduated from the Icelandic Horticultural College in 1980 and, together with his wife, Sigrún Elfa Reynisdóttir, founded the horticultural farm Engi in Laugarás in 1985. There they practiced organic cultivation and were among the pioneers in growing fresh culinary herbs in Iceland. Ingólfur has also worked as a teacher and programme director at the Horticultural College and has played an important role in developing education in organic farming. In recognition of his pioneering work in organic cultivation and education, he was awarded the Knight’s Cross of the Icelandic Order of the Falcon in 2026.
Over the past four years, the festival’s speakers have explored a variety of topics connected to potatoes:
🥔Ingibjörg Gestsdóttir, folklorist, spoke about potato cultivation in Akranes (2022).
🥔 Hildur Hákonar discussed the history of the potato, with particular emphasis on her book The Blue Queen and the People Who Grew Potatoes (2023).
🥔Folklorist Helga Einarsdóttir focused on the Great Famine, An Gorta Mór, in Ireland (2024).
🥔Writer Sölvi Björn Sigurðsson read from his book Visitors in Sauðlauksdalur, in which Björn Halldórsson and potato seed stock play an important role (2025).
Over time, the festival has evolved from focusing solely on the famous Akranes potato to exploring the global history of the potato, food history, famine, cultivation, and Icelandic cultural history.
Following the first Potato Festival in 2022, a potato garden was established beside the Sanda residential house on the museum grounds. Since then, pupils from Brekkubæjarskóli have visited each spring to plant potatoes and returned in autumn to harvest them. The garden has become both a living memorial to Akranes’ potato-growing heritage and an important part of the town’s educational and museum activities.
Founded in 1959, Byggðasafnið í Görðum preserves and presents the history of Akranes and Hvalfjörður. The Potato Festival fits naturally within the museum’s mission, as it not only tells history but also brings a part of it back to life.
“The difference between old and modern Akranes is hidden in a single potato.”

GPS punktar

N64° 19' 11.556" W22° 2' 39.145"

Staðsetning

Stúkuhúsið - Garðaholt 3, 300 Akranes, Iceland