Þriðjudagskvöldið 8. september næstkomandi verður FFSN með kvöldgöngu á Búrfell nærri Rifi. Við hefjum gönguna við fjárréttina á Breið og göngum þaðan suður fyrir fjallið og þar er þægileg uppganga á fjallið. Búast má við allt að 6 km göngu og um 300m hækkun
Gangan er ókeypis og opin öllum. Hún hentar öllum í sæmilegu gönguformi sem treysta sér upp smá brekku. Vonast er eftir góðu útsýni yfir jökulinn, tinda Eysteinsdalssvæðisins og láglendinu yst á Snæfellsnesi.
Gott er hafa með sér létt nesti og einhvað að drekka. Mælt er með góðum gönguskóm með ökklastuðningi, og þó stefnt sé á að ljúka göngu fyrir myrkur er ekki verra að hafa með sér höfuðljós til öryggis.
Til að komast á upphafsstað göngu er keyrt af Útnesvegi á Flugvallarveginn við Rif, en haldið áfram framhjá golfvellinum þar til komið er að réttinni við efnisnámusvæðið. Sjá nánar á mynd
Fararstjóri er Kristinn Jónasson bæjarstjóri.