Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Júlí er yfirleitt hlýjasti mánuður ársins. Þá eru heiðarnar eins grónar og þær verða og lax- og silungsveiði er hafin í ám landsins. Júlí er aðalsumarleyfismánuður Íslendinga og sérstaklega mikið er um fjölskyldufólk á ferðinni, auk þess sem flestir ferðamenn eru á landinu.

Hvað þarf ég að taka með?

Veðurfar

Hiti 11.1°C / 51.98F

Meðaltal - efri mörk 15.2°C / 59.36F

Meðaltal - neðri mörk 8.5°C / 47.3F

  • Flíspeysa/létt ullarpeysa
  • Létt lög af fötum (síðermaboli, létta jakka o.þ.h.)
  • Regn-/vindheldur jakki og buxur
  • Sterkir gönguskór með góðum sóla
  • Sólgleraugu
  • Vettlingar
  • Trefill
  • Húfa
  • Hlý undirföt/ullarnærföt (sérstaklega ef ferðinni er heitið inn á hálendi eða í fjallgöngur)
  • Vatnsheldir gönguskór (sérstaklega ef ferðinni er heitið inn á hálendi eða í fjallgöngur)
  • Hlýir sokkar eða göngusokkar(sérstaklega ef ferðinni er heitið inn á hálendi eða í fjallgöngur)
  • Sundföt
  • Fljótþornandi handklæði (sérstaklega ef farið er í náttúrulaugar og uppsprettur – hægt er að leigja handklæði í flestum sundlaugum)
  • Skordýrafælur/flugnanet
  • Augnhlíf/svefngrímu
  • Sólarvörn

 

Júlí er tími fyrir

Upplifðu aðra mánuði

Viðburðir