Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

100 dagar í almyrkva! 🌒

Það styttist hratt í einn magnaðasta viðburð ársins – almyrkvann sem gengur yfir Ísland 12. ágúst!

Í dag sátu fulltrúar Markaðsstofu Vesturlands annan kynningarfund almannavarnardeildar ríkislögreglustjóra þar sem farið var yfir stöðuna og næstu skref. Undirbúningurinn er í fullum gangi og ljóst að mikið og öflugt starf hefur þegar verið unnið á svæðinu.

Margrét Björk Björnsdóttir, fagstjóri áfangastaða- og markaðssviðs SSV, kynnti það umfangsmikla undirbúningsstarf sem hefur átt sér stað á Vesturlandi – enda má búast við fjölda gesta sem vilja upplifa þessa einstöku stund.

Einnig var kynnt að ný upplýsingasíða sé á leiðinni inn á island.is þar sem bæði íbúar og gestir geta nálgast helstu upplýsingar um almyrkvann. Hún fer í loftið á næstu dögum – við deilum slóðinni um leið og hún verður tilbúin!

✨ Það eru bara 100 dagar í myrkvann – ertu tilbúin/n?