Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Almyrkvinn sýndi styrk samstarfs á Vesturlandi

Almyrkvinn 12. ágúst var stórt verkefni sem kallaði á náið samstarf stjórnvalda, sveitarfélaga, viðbragðsaðila, ferðaþjónustu og annarra hagaðila. Vesturland og sérstaklega Snæfellsnes voru meðal þeirra svæða þar sem búist var við miklum fjölda gesta.

Í nýrri skýrslu Forsætisráðuneytisins er farið yfir undirbúning og framkvæmd verkefnisins. Niðurstaðan er afar jákvæð. Dagurinn gekk í meginatriðum samkvæmt áætlun og engin stærri atvik höfðu áhrif á heildarframkvæmdina.

Sveitarfélög og aðrir staðbundnir hagaðilar gegndu lykilhlutverki í undirbúningnum, en skýrslan leggur sérstaka áherslu á mikilvægi staðbundinnar þekkingar, sameiginlegrar stöðumyndar og góðs upplýsingaflæðis.

Markaðsstofur landshlutanna á almyrkvasvæðinu komu meðal annars að samræmdri upplýsingagjöf til almennings og ferðafólks í samstarfi við stjórnvöld, Ferðamálastofu og Íslandsstofu.

Reynslan af almyrkvanum sýnir vel hversu miklu góð samhæfing, staðbundin þekking og öflug upplýsingamiðlun geta skilað þegar margir ólíkir aðilar þurfa að vinna saman að stóru samfélagsverkefni.

Lesa skýrsluna í heild sinni.