Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Almyrkvinn vekur mikinn áhuga – skemmtiferðaskip stefna á Vesturland

Þegar almyrkvi á sólu gengur yfir Ísland 12. ágúst 2026, í fyrsta sinn síðan 1954, verður Vesturland eitt af lykilsvæðum landsins fyrir þá sem vilja upplifa þennan einstaka náttúruviðburð. Búist er við að yfir 7.000 farþegar um borð í að minnsta kosti þrettán skemmtiferðaskipum verði á hafsvæðinu við vesturströnd Íslands í tengslum við almyrkvann.

Skemmtiferðaskipin munu nýta þann sveigjanleika sem hafið býður upp á og færa sig með stuttum fyrirvara í leit að heiðskírum himni. Sum skipanna munu sigla frá Reykjavík yfir Grænlandssund og fylgjast með almyrkvanum frá austurströnd Grænlands, á meðan önnur munu halda sig við Vestfirði eða hafsvæðið undan Vesturlandi, þar sem almyrkvaslóðin liggur meðal annars yfir Snæfellsnes og Vesturland.

Fyrir Vesturland felur þessi mikla aðsókn í sér einstakt tækifæri. Svæðið verður í brennidepli hjá bæði ferðamönnum á landi og sjó og fjölmargir gestir munu nýta sér þjónustu, afþreyingu og gistingu í landshlutanum fyrir og eftir myrkvann. Jafnframt er unnið markvisst að undirbúningi til að tryggja öryggi gesta, vernda viðkvæm svæði og veita skýrar upplýsingar um aðgengi og áhorfsstaði. 

Fyrir áhugasama, þá bendum við á heimasíðu Almyrkvans