Atvikavaktin á 30 mínútum - Örnámskeið fyrir ferðaþjónustuaðila
Til að styðja við öflugra öryggisstarf hefur Ferðamálastofa tekið í notkun Atvikavaktina – miðlægt atvikaskráningarkerfi fyrir ferðaþjónustuna. Kerfið er fyrirtækjum að kostnaðarlausu og gerir þeim kleift að skrá slys, óhöpp og næratvik á einfaldan og samræmdan hátt.
- Atvikavaktin er notendum að kostnaðarlausu.
Atvikavaktin er hönnuð með þarfir ferðaþjónustufyrirtækja í huga – til að spara tíma, bæta yfirsýn og styrkja faglegt öryggisstarf.
Hvert fyrirtæki hefur eiginn aðgang að sínum gögnum sem enginn annar hefur aðgang að.
Atvikavaktin auðveldar fyrirtækjum sem bjóða ferðir og afþreyingu að sinna lögbundnum skyldum sínum um öryggisáætlanir og styður þannig við markviss og fagleg vinnubrögð í öryggismálum.
Atvikavaktin er rekin af Ferðamálastofu og er liður í stefnu og áherslu stjórnvalda um aukið öryggi ferðamanna.

Skráning á námskeið - 3 dagsetningar í boði:
30. júní kl 11:00 – 11:30
https://events.teams.microsoft.com/event/0fcdee11-ac83-4516-8ef5-1a24e8a462da@764a306d-0a68-45ad-9f07-6f1804447cd4
1. júlí kl 11 - 11:30 - Námskeið á ensku:
https://events.teams.microsoft.com/event/c9a8cb94-351f-456f-a9a9-77a4c89ffb64@764a306d-0a68-45ad-9f07-6f1804447cd4
8. júlí kl 11:00 – 11:30
https://events.teams.microsoft.com/event/c63af7a8-fcaf-44d4-bac1-b2ef0d0e2ccc@764a306d-0a68-45ad-9f07-6f1804447cd4
Við hvetjum ykkur til að kynna ykkur Atvikavaktina og taka þátt í þeirri vegferð að gera íslenska ferðaþjónustu enn öruggari fyrir gesti og starfsfólk.