Atvikavaktin styrkir öryggi í ferðaþjónustu
Öryggi er ein mikilvægasta forsenda góðrar upplifunar ferðamanna. Nú hvetur Ferðamálastofa ferðaþjónustufyrirtæki um allt land, þar á meðal á Vesturlandi, til að nýta sér Atvikavaktina, stafrænt og gjaldfrjálst kerfi fyrir skráningu slysa, óhappa og næratvika.
26.11.2026
Með skráningu atvika geta fyrirtæki greint áhættu fyrr, styrkt forvarnir og byggt upp öflugri öryggismenningu. Sérstök áhersla er lögð á að skrá næratvik, þar sem slíkar upplýsingar geta hjálpað til við að koma í veg fyrir alvarlegri atvik síðar.
Atvikavaktin er fyrirtækjum að kostnaðarlausu, auðveldar utanumhald öryggismála og styður jafnframt við lögbundnar skyldur um öryggisáætlanir. Gögnin nýtast bæði fyrirtækjunum sjálfum og stuðla að aukinni þekkingu og öryggi í íslenskri ferðaþjónustu í heild.
Viltu vita meira? Kynntu þér Atvikavaktina og hvernig hún getur styrkt öryggisstarf þíns fyrirtækis á vef Ferðamálastofu.