Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Beint flug frá Kína gæti styrkt ferðaþjónustu um allt Vesturland

Gestakomur ferðamanna frá Kína á Vesturlandi hafa meira en tvöfaldast á aðeins tveimur árum og með nýrri flugtengingu milli Peking og Keflavíkur opnast enn frekari tækifæri fyrir ferðaþjónustufyrirtæki í landshlutanum.

Mikilvægur áfangi í íslenskri ferðaþjónustu náðist í vikunni þegar fyrsta reglubundna áætlunarflugið frá Beijing lenti á Keflavíkurflugvelli. Ný flugleið Air China tengir nú Kína og Ísland með þremur vikulegum ferðum og markar fyrstu reglubundnu flugtenginguna milli Íslands og kínverska meginlandsins.

Þetta eru afar jákvæð tíðindi fyrir íslenska ferðaþjónustu á tímum þar sem greinin hefur staðið frammi fyrir ýmsum áskorunum. Flugleiðin opnar aðgang að einum stærsta og ört vaxandi ferðamannamarkaði heims og skapar ný tækifæri fyrir íslensk ferðaþjónustufyrirtæki til að sækja fram á alþjóðlegum mörkuðum. Kína er nú fjórði stærsti ferðamannamarkaður Íslands og á síðustu tólf mánuðum heimsóttu um 139 þúsund kínverskir ferðamenn landið. Hótelgistinætur þeirra voru um 413 þúsund og neysla þeirra hér á landi nam um 10 milljörðum króna árið 2025.

Ávinningurinn gæti orðið sérstaklega mikill fyrir Vesturland. Kínverskum ferðamönnum hefur fjölgað hratt á svæðinu undanfarin ár og þróunin sýnir að áhugi markaðarins á landshlutanum fer vaxandi. Gögn um gistinætur sýna að kínverskir ferðamenn sækja Vesturland ekki eingöngu heim yfir sumarmánuðina. Árið 2025 voru gistinætur þeirra yfir vetrarmánuðina nóvember til mars fleiri en yfir hefðbundna sumarmánuði, júní til ágúst. Það undirstrikar mikilvægi kínverska markaðarins fyrir heilsársferðaþjónustu á Vesturlandi og þau tækifæri sem felast í nýrri flugtengingu við Kína.

Gestakomur frá Kína á Vesturlandi voru 4.674 árið 2023, fjölguðu í 6.733 árið 2024 og náðu 9.909 árið 2025. Það jafngildir rúmlega 112% fjölgun á aðeins tveimur árum og undirstrikar þá sterku stöðu sem Vesturland er að byggja upp meðal kínverskra ferðamanna.

Vesturland hefur alla burði til að nýta þetta tækifæri. Svæðið býður upp á fjölbreytta náttúru, einstaka sögu og menningu, öfluga gistimöguleika og fjölbreytta afþreyingu sem höfðar vel til erlendra gesta. Með auknum tengingum við einn stærsta ferðamannamarkað heims skapast ný sóknarfæri fyrir fyrirtæki í gistingu, afþreyingu, veitingarekstri og verslun. Ef þróunin undanfarin ár heldur áfram gæti nýja flugleiðin orðið öflugur vaxtarhvati fyrir ferðaþjónustu á Vesturlandi á komandi árum.