Málþing GJALDSKYLDA – þjónustugjöld eða þjórfé?
GJALDSKYLDA – þjónustugjöld eða þjórfé?
Gjaldtaka á ferðamannastöðum – hlutverk, ábyrgð, réttindi, skyldur
Hverjar eru forsendurnar fyrir gjaldtöku á ferðamannastöðum?
Hver tekur ákvörðun um gjöld, hver innheimtir þau – og hvert renna tekjurnar?
Er um raunveruleg þjónustugjöld að ræða eða greiðslur sem skila sér ekki til staðanna sjálfra?
Á þessu opna málþingi er gjaldtaka á ferðamannastöðum tekin til skoðunar frá ólíkum sjónarhornum. Fjallað verður sérstaklega um beina gjaldtöku, með áherslu á ramma, ábyrgð, réttindi, skyldur og framkvæmd, gagnvart stjórnsýslu, rekstraraðilum, nærsamfélagi og gestum.
Kjarnaspurning málþingsins er:
👉 Hver er ábyrgð, réttindi og skyldur þeirra sem innheimta gjöld við náttúruperlur – og þeirra sem nýta náttúru og land utan eigin eignar sem söluvöru í atvinnuskyni?
Á dagskrá eru stutt erindi frá fulltrúum ríkis, sveitarfélags, opinberra stofnana, landeigenda og ferðaþjónustu, auk pallborðsumræðu þar sem sjónarmið eru dregin saman.
📍 Staður: Þjóðgarðsmiðstöðin á Hellissandi
🗓 Dagur: Þriðjudagurinn 17. febrúar
⏰ Tími: 13:00–16:00
🎟 Aðgangur: Ókeypis – öllum opið
👉 Skráning er nauðsynleg til að auðvelda undirbúning.
🔗 Skráning fer fram hér
Málþingið er haldið í samstarfi Markaðsstofu/Áfangastaðastofu Vesturlands, RETURN-verkefnisins, Snæfellsjökulsþjóðgarðs og Svæðisgarðsins/Vistvangs á Snæfellsnesi.
Dagskrá málþings
GJALDSKYLDA – þjónustugjöld eða þjórfé?
Gjaldtaka á ferðamannastöðum – hlutverk, ábyrgð, réttindi, skyldur
13:00–13:15 | Inngangur
- Aðdragandi og markmið málþingsins – Margrét Björk Björnsdóttir
- Stutt kynning á RETURN-verkefninu - Guðrún Þóra Gunnarsdóttir
13:15–14:15 | Erindi (15 mín hvert)
- Kolbeinn Árnason, skrifstofustjóri, skrifstofa auðlinda, Atvinnuvegaráðuneytið
- Kristinn Jónasson, bæjarstjóri Snæfellsbæjar
- Sigrún Ágústsdóttir, forstjóri Náttúruverndarstofnunar
- Ragnhildur Sigurðardóttir, þjóðgarðsvörður, Snæfellsjökulsþjóðgarðs
- Kaffihlé
14:30–15:00 | Erindi (15 mín hvert)
- Þorgrímur Guðmundsson, landeigandi og selabóndi, Ytri-Tungu
- Ásgeir Baldurs, forstjóri Arctic Adventures
15:00–15:45 | Pallborðsumræða
- Umsjón: Guðrún Þóra Gunnarsdóttir, forstöðumaður Rannsóknamiðstöðvar ferðamála
15:45–16:00 | Samantekt og lokaorð