Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Dagur íslenskrar náttúru – njótum náttúrunnar á Vesturlandi

Dagur íslenskrar náttúru er haldinn ár hvert 16. september og hefur frá árinu 2010 verið helgaður íslenskri náttúru og mikilvægi þess að vernda hana og varðveita. Dagsetningin er fæðingardagur Ómars Ragnarssonar, sem hefur um áratugaskeið verið ötull talsmaður náttúruverndar og átt stóran þátt í að vekja athygli á náttúru Íslands og mikilvægi hennar.

Víða um land er boðið upp á fjölbreytta dagskrá í tilefni dagsins. Náttúrufræðistofnun hefur meðal annars staðið fyrir náttúrugripasýningum og -greiningum, skipulagt gönguferðir og gefið út fræðsluefni fyrir gesti á öllum aldri.

Vesturland er sannkölluð náttúruparadís, þar sem fjölbreytt landslag og lífríki mætast. Hér má finna skóga og hraun, fossa og fjöll, vötn og laxveiðiár, eyjar og fjörur, fuglasvæði og fjölmörg græn svæði. Náttúran er ekki aðeins mikilvæg fyrir íbúa og gesti svæðisins heldur einnig ótal plöntur, dýr og aðrar lífverur sem eiga þar heimkynni sín.

Dagur íslenskrar náttúru er því kjörið tilefni til að stíga út og njóta þess sem Vesturland hefur upp á að bjóða. Tína ber í botni Hvalfjarðar, njóta haustlitanna í Einkunnum, fylgjast með urriðanum í Laxá í Dölum, skoða fuglalífið í eyjum Breiðafjarðar, ganga meðfram strandlengjunni við Djúpalónssand eða njóta útsýnisins af Akrafjalli.

Njótum náttúru Vesturlands – í dag, á morgun og alla daga!