Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Ég er að fara í berjamó

Haustið hefur sinn sérstaka sjarma. Þegar sumarið er liðið og berin hafa náð fullum þroska er kjörið að drífa sig út í náttúruna og fara í berjamó. Fyrir mörgum er berjatínsla ekki aðeins leið til að ná sér í góðan mat heldur líka notaleg samvera, útivist og kærkomið tækifæri til að njóta íslenskrar náttúru.

Í íslenskri náttúru vaxa ýmsar tegundir berja og algengast er að fólk tíni bláber, aðalbláber, krækiber og hrútaber. Berin hafa í gegnum tíðina verið nýtt á margvíslegan hátt, bæði til matar, lækninga og litunar. Í dag fara flestir þó í berjamó sér til ánægju og afþreyingar. Það er eitthvað notalegt við að ganga um lyngið, leita að góðum berjaþúfum og fylla ílátið smátt og smátt.

Berjamó er þannig frábær fjölskylduafþreying. Klæða þarf sig eftir veðri og gott er að hafa með sér kaffibrúsa og nesti. Fátt jafnast á við að setjast niður úti í móa, fá sér kaffisopa og horfa yfir fallegt haustlandslag eftir að hafa fundið góða berjauppskeru.

Þegar farið er til berja er gott að hafa hentug ílát meðferðis. Plastbox með víðu opi eru létt og þægileg og auðvelt er að raða þeim í bakpoka. Sumir kjósa að tína berin í sitt hvort ílátið en aðrir blanda þeim saman og flokka síðar. Þeir sem vilja auka afköstin geta einnig notað berjatínur, en mörgum finnst handtínsla einfaldlega skemmtilegri.

Þegar heim er komið er hægt að njóta berjanna strax eða geyma þau til seinni tíma. Þau geymast í nokkra daga í kæli en til lengri geymslu er gott að hreinsa þau og frysta í hæfilegum skömmtum. Síðan má nota þau í grauta, þeytinga og eftirrétti.

Aðrir kjósa að gera sultur, saft eða jafnvel nýta berin í aðrar spennandi uppskriftir. Möguleikarnir eru nánast óteljandi.

Svo er bara að klæða sig vel, taka með sér box og kaffibrúsa og halda út í móa. Vesturland bíður upp á mörg svæði þar sem hægt er að ná sér í ber. Haustið bíður – og kannski leynist væn berjafull þúfa handan við næsta lyng.