Mótvindur – Fundur um stöðu og framtíð ferðaþjónustu í Norðvesturkjördæmi
Markaðsstofa Vesturlands í samstarfi við Samtök ferðaþjónustunnar (SAF) og Markaðsstofu Vestfjarða boðar til fundar um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í Norðvesturkjördæmi.
Fundurinn fer fram fimmtudaginn 22. október kl. 17:00–19:00 í Hjálmakletti, Menningarhúsi Borgarfjarðar í Borgarnesi. Einnig verður hægt að fylgjast með fundinum í beinni útsendingu á vef SAF.
Ferðaþjónusta er ein af mikilvægustu atvinnugreinum Vesturlands og hefur vaxið mikið á undanförnum árum. Greinin stendur hins vegar frammi fyrir ýmsum áskorunum sem geta haft áhrif á rekstrarumhverfi fyrirtækja, fjárfestingar og áframhaldandi uppbyggingu.
Á Alþingi eru nú til umfjöllunar tillögur um breytingar á sköttum og gjöldum sem snerta ferðaþjónustuna, meðal annars hækkun virðisaukaskatts á baðlón, breytingar á gistináttaskatti og innviðagjaldi auk hugmynda um náttúrupassa.
Á fundinum verður fjallað um áhrif þessara breytinga á ferðaþjónustu og atvinnulíf í kjördæminu. Deloitte mun meðal annars kynna niðurstöður greiningar sem unnin hefur verið fyrir SAF á fyrirhuguðum skatta- og gjaldabreytingum.
Dagskrá fundarins
-
Blómleg ferðaþjónusta skilar stærri sneið til samfélagsins – Pétur Óskarsson, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar.
-
Fyrirhugaðar skatta- og gjaldabreytingar í samhengi ferðaþjónustu – Frímann Snær Guðmundsson, meðeigandi Deloitte.
-
Að halda sjó – skemmtiferðaskip skapa verðmæti – Sölvi Guðmundsson, forstöðumaður Markaðsstofu Vestfjarða.
-
Borgar sig enn að fjárfesta í ferðaþjónustu? – Ólafur Steinarsson, eigandi Krauma.
Fundarstjóri: Kristján Guðmundsson, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Vesturlands.
Pallborðsumræður með þingmönnum
Í seinni hluta fundarins gefst tækifæri til að ræða stöðu ferðaþjónustunnar og framtíð hennar beint við þingmenn Norðvesturkjördæmis.
Þátttakendur verða:
-
Arna Lára Jónsdóttir, Samfylkingu
-
Ingibjörg Davíðsdóttir, Miðflokki
-
Ingvar Þóroddsson, Viðreisn
-
Ólafur Adolfsson, Sjálfstæðisflokki
-
Sigurjón Þórðarson, Flokki fólksins
-
Stefán Vagn Stefánsson, Framsóknarflokki
Umræðustjóri verður Skapti Örn Ólafsson, upplýsingafulltrúi SAF.
Við hjá Markaðsstofu Vesturlands hvetjum ferðaþjónustuaðila, sveitarstjórnarfólk og alla sem láta sig atvinnuuppbyggingu á Vesturlandi varða til að mæta á fundinn.
Mikilvægt er að sjónarmið ferðaþjónustunnar í landshlutanum heyrist og að eiga opið samtal við þingmenn um rekstrarumhverfi greinarinnar og tækifæri til framtíðar.
Fundurinn er hluti af fundarröðinni Mótvindur sem SAF stendur fyrir í samstarfi við markaðsstofur landshlutanna.
Hlökkum til að sjá ykkur í Borgarnesi!
Markaðsstofa Vesturlands