Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Ferðaþjónustan á Sturlureykjum í Landanum

Í þættinum Landanum á RÚV var á dögunum fjallað um ferðaþjónustuna á Sturlureykjum í Reykholtsdal. Þar hefur verið byggð upp áhugaverð upplifun fyrir ferðamenn þar sem íslenski hesturinn, jarðhitinn og saga bæjarins koma saman.

Gestir fá að kynnast íslenska hestinum í návígi og hefur meðal annars reynst vinsælt að taka „sjálfu“ með hestunum. Jarðhitinn skipar einnig stóran sess í heimsókninni og fá gestir innsýn í hvernig hann hefur verið nýttur á bænum í gegnum tíðina.

Innslagið gefur skemmtilega mynd af því hvernig hægt er að byggja ferðaþjónustu á sérstöðu staðarins og þeirri sögu og starfsemi sem þar er fyrir.

Sjá innslag Landans á vef RÚV