Gervigreindin vinnur á meðan þú drekkur kaffið - Menntamorgun
Á næsta Menntamorgni ferðaþjónustunnar, þriðjudaginn 1. desember kl. 11:00–12:00, verður farið yfir raunveruleg dæmi um hvernig ferðaþjónustufyrirtæki nýta gervigreind í markaðssetningu, samskiptum, sölu og daglegum rekstri. Fundurinn fer fram á Zoom og er öllum opinn án endurgjalds.
Dagskrá
Fundarstjóri:
Jóhannes Þór Skúlason framkvæmdastjóri SAF og formaður stýrihóps Hæfniseturs ferðaþjónustunnar.
Erindi:
- Aðalheiður Ósk Guðmundsdóttir, sölu- og markaðsstjóri hjá Hótel Breiðdalsvík, segir frá því hvernig hótelið nýtir gervigreind í daglegum rekstri.
- Valur Heiðar Sævarsson, stofnandi Your Friend in Reykjavík, fjallar um hvernig fyrirtækið hefur nýtt gervigreind allt frá vinnslu tengiliða af ferðasýningum yfir í þróun eigin rekstrartóla.
Til gamans má geta að gervigreindin sjálf verður einnig á dagskrá. Í upphafi fundar fær hún verkefni sem hún vinnur samhliða fundinum og niðurstöðurnar verða kynntar í lok hans.
Fundurinn er sérstaklega áhugaverður fyrir stjórnendur og starfsfólk í ferðaþjónustu sem vilja kynnast hagnýtum leiðum til að nýta nýja tækni til að efla rekstur og samkeppnishæfni.