Hvernig höldum við í gott fólk? Menntamorgunn ferðaþjónustunnar – 14. október kl. 11:00–12:00.
Fjallað verður meðal annars um mikilvægi góðra samskipta, viðurkenningar, fræðslu og starfsþróunar og hvernig þessir þættir geta stuðlað að aukinni starfsánægju og sterkari vinnustaðamenningu. Einnig verður rætt um hvað fær starfsfólk til að snúa aftur og hvernig fyrirtæki geta nýtt veturinn til að undirbúa næsta ferðatímabil.
Það þarf ekki alltaf stórar eða kostnaðarsamar breytingar til að bæta starfsumhverfið. Litlar breytingar í daglegum samskiptum, skýrari væntingar og tækifæri til að þróast í starfi geta skipt miklu máli – bæði fyrir starfsfólkið og reksturinn.
Menntamorgunn ferðaþjónustunnar – 14. október kl. 11:00–12:00.
Skráning og nánari upplýsingar á haefni.is/vidburdir.
Menntamorgunn ferðaþjónustunnar er samstarfsverkefni Hæfniseturs ferðaþjónustunnar, Samtaka ferðaþjónustunnar, Ferðamálstofu og Markaðsstofa landshlutanna.