Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Íslenskir prjónarar taka við af gervigreind á fundum

Íslandsstofa hefur hleypt af stokkunum nýrri og óvenjulegri kynningarherferð fyrir áfangastaðinn Ísland undir heitinu AI Knittakers (Authentic Icelandic Knittakers). Markmið herferðarinnar er að vekja athygli á Íslandi sem vellíðunaráfangastað með því að bjóða fólki að senda íslenska prjónara í sinn stað á fjarfundi.

Í verkefninu sitja íslenskir prjónarar fundi fyrir þátttakendur og skila að fundi loknum prjónuðu orði úr íslenskri ull sem fangar kjarna umræðunnar. Hugmyndin byggir á þeirri ádeilu að fundir taki oft óþarflega mikinn tíma og að hann gæti verið betur nýttur, til dæmis í ferðalag til Íslands.

Alls taka um 30 prjónarar víðs vegar af landinu þátt í verkefninu, en þeir voru valdir í samstarfi við markaðsstofur landshlutanna. Meðal þeirra eru bændur, kennarar, hönnuðir, listafólk og starfsfólk í ferðaþjónustu. Verkefnið er hluti af markaðsverkefninu Ferðaþjónusta til framtíðar, sem Íslandsstofa rekur í samstarfi við stjórnvöld, Samtök ferðaþjónustunnar og markaðsstofur landshlutanna.

Herferðin verður í gangi til 20. nóvember og er þjónustan aðgengileg án endurgjalds á lykilmörkuðum íslenskrar ferðaþjónustu í gegnum vefinn AIKnittaker.com.

Verkefnið er enn eitt dæmið um hvernig íslensk ferðaþjónusta nýtir húmor, sköpunargáfu og sérstöðu landsins til að vekja alþjóðlega athygli á Íslandi sem áfangastað.

Hægt er að nálgast frekari upplýsingar á vef Íslandsstofu.