Kjarnaskilaboð vegna almyrka
Flestir íbúar á vestanverðu landinu eiga því láni að fagna og búa við þau forréttindi að besti staðurinn til að upplifa almyrkvann er frá heimilum sínum eða í göngufæri í nærumhverfi sínu. Í öðrum landshlutum verður hægt að sjá deildarmyrkva.
Með því að velja hentugan stað við eða nærri heimili sínu getur hver og einn lagt sitt af mörkum við að tryggja almannaöryggi og draga úr umferð. Sævar Helgi Bragason eða Stjörnu-Sævar horfir til að mynda á almyrkvann frá heimili sínu á höfuðborgarsvæðinu. Skoða má á gagnvirku korti hvernig og hversu lengi almyrkvinn sést frá heimili fólks.
Stjórnvöld hvetur fólk á vestanverðu landinu og suðvesturhorninu ferðist ekki á bílum sínum að nauðsynjalausu, heldur njóti þessa einstæða og sögulega atburðar heima eða í sínu nærumhverfi.
Gert er ráð fyrir auknu álagi á samgöngur, viðkvæm náttúrusvæði, innviði og viðbragðsaðila á vestanverðu landinu þar sem almyrkvinn verður sýnilegur. Búast má við töluverðum umferðarþunga dagana fyrir og eftir almyrkvann.
Fólk sem hyggst ferðast til að verða vitni að almyrkvanum er hvatt til að skipuleggja ferðir sínar tímanlega, kynna sér ferðaleið og áfangastað og dvelja lengur. Ferðafólk er hvatt til þess að vera vel undirbúið fyrir ferðalög sín vegna almyrkvans. Einnig að taka með mat, vatn, lyf og viðeigandi fatnað og gæta þess að vera með nægt eldsneyti eða hleðslu á ökutækjum. Þá er eins og endranær mikilvægt að fara varlega í umferðinni og hafa hugann við veginn en alls ekki símann.
Í þeim landshlutum sem almyrkvinn sést hafa verið skilgreindir góðir safnstaðir fyrir fólk að fylgjast með almyrkvanum þar sem skammt er í þjónustu.
Á fáum völdum stöðum þar sem álag kann að reynast mikið og aðstæður krefjandi hefur verið ákveðið að takmarka aðgengi, stýra umferð eða loka tilteknum vegum. Fólk er hvatt til að kynna sér þetta vel og virða leiðbeiningar og takmarkanir.
Nauðsynlegt er að nota örugg og vottuð sólmyrkvagleraugu til að fylgjast með. Örugg sólmyrkvagleraugu eru með sérstakar síur sem draga úr hættulegri útfjólublárri og innrauðri geislun. Nota þarf gleraugun í deildarmyrkva, bæði fyrir og eftir almyrkva. Aðeins á meðan almyrkvi stendur yfir, þegar tunglið hylur sólina að fullu, er öruggt að taka þau af í stutta stund. Setjið þau aftur upp um leið og einhver hluti sólarinnar verður sýnilegur.
Stjórnvöld hafa samhæft aðgerðir vegna almyrkvans sem er lykilforsenda þess að taka á móti miklum fjölda gesta með öruggum hætti. Stofnanir og viðbragðsaðilar gegna þar hvert sínu hlutverki: Meðal þeirra eru almannavarnir, lögreglan, Ferðamálastofa, Landhelgisgæslan, Landlæknisembættið, Landsbjörg, Náttúruverndarstofnun, Samgöngustofa, Veðurstofan, Vegagerðin, sveitarfélög, markaðsstofur landshluta og Íslandsstofa.
Ekki er nauðsynlegt að himinninn sé alveg heiðskír til að fylgjast með sólmyrkvanum. Háskýjaslæða truflar ekki en meira ef það er rigning og þungbúið. Eftir sem áður verður hægt að upplifa nokkuð einstakt: Að myrkur skellur á í eina til tvær mínútur.
Fólk er hvatt til að fylgjast með upplýsingum stjórnvalda, skoða veðurspá og fylgja leiðbeiningum lögreglu og viðbragðsaðila.
Fræðslugátt Sævars Helga: https://solmyrkvi2026.is/almyrkvi-a-solu-2026
Íbúar á vestanverðu landinu (undir almyrkvaslóð) – „Heima er best“
- Fylgjumst með viðburðinum heima eða í nærumhverfi okkar.
- Víðast hvar á vestanverðu landinu er hægt að upplifa almyrkvann frá heimilum eða í nærumhverfi.
- Ekki nauðsynlegt að ferðast langar leiðir til að upplifa almyrkvann.
- Stjörnu-Sævar horfir heima.
- Í öðrum landshlutum – utan almyrkvaslóðar – er hægt að sjá deildarmyrkva.
- Hægt að vinna upplýsingar um sólmyrkvann frá heimili þínu.
- Alls varir sólmyrkvinn í um tvo tíma en almyrkvinn í um 1-2 mínútur.
- Förum ekki í stutt erindi að nauðsynjalausu meðan á viðburðinum stendur.
- Fylgjumst með upplýsingum frá stjórnvöldum, skoða veðurspá, og fylgja leiðbeiningum lögreglu, viðbragðsaðila etc.
Innlendir og erlendir ferðamenn – „Verum vel undirbúin og förum varlega“
- Góðir skoðunarstaðir, skilgreindir safnstaðir og dagskrá á öllum áhrifasvæðum
- Veljið áhorfsstað nálægt heimili eða gistingu. Með því minnkar álag á vegakerfi, þjónustu og viðbragðsaðila.
- Umferðarstýring, götulokanir og sérstakar almenningssamgöngur
- Skoðið hvar takmarkanir verða á umferð eða henni stýrt.
- Mætum snemma og dveljum lengur.
- Fólk sem hyggst ferðast til að sjá almyrkvann er hvatt til að mæta snemma og dvelja lengur.
- Með því að ferðast fyrr um daginn og bíða með brottför eftir að myrkva lýkur má draga úr umferð og stuðla að öruggari umferð.
- Verum vel undirbúin
- Kynnið ykkur ferðaleið og áfangastað og gerið ráð fyrir lengri ferðatíma.
- Takið með nauðsynleg lyf, mat, vatn og viðeigandi fatnað.
- Gætið þess að vera með nægt eldsneyti eða hleðslu á bifreiðum.
- Gætið að hreinlæti, að matvæli sé geymd við fullnægjandi aðstæður
- Förum varlega og höfum augun á veginum
- Höfum ekki hugann við farsíma heldur með augun á veginum.
- Virðum hraðamörk og spennum bílbeltin.
- Sýnum þolinmæði
- Sýnum þolinmæði þegar tímabundnar biðraðir myndast.
- Fylgjum leiðbeiningum yfirvalda og viðbragðsaðila.
- Styðjumst við opinberar upplýsingaveitur.
- Virðum náttúru og lokanir.
- Gestir og íbúar eru hvattir til að fylgja leiðbeiningum viðbragðsaðila og virða takmarkanir á viðkvæmum svæðum.
- Fólk hvatt til að fylgjast með upplýsingum frá stjórnvöldum, skoða veðurspá, og fylgja leiðbeiningum lögreglu, viðbragðsaðila etc.
Allir – „Öryggi fyrir augun – notum sólmyrkvagleraugu“
- Örugg sólmyrkvagleraugu eru með sérstökum síum sem draga úr hættulegri útfjólublárri og innrauðri geislun.
- Sólmyrkvagleraugu skulu vera vottuð og merkt alþjóðlega öryggisstaðlinum ISO 12312-2.
- Nota þarf gleraugu í öllum deildarmyrkva, bæði fyrir og eftir almyrkva.
- Aðeins á meðan almyrkvi stendur yfir, þegar tunglið hylur sólina að fullu, er öruggt að taka þau af í stutta stund.
Fræðsla – „Einstakur viðburður“ (Fræðsla einkum á vegum Sævars Helga)
- Sævar Helgi Bragason (Stjörnu-Sævar) jarðfræðingur og vísindamiðlari hefur um langt skeið gegnt mikilvægu hlutverki við að veita skólum og á vinnustöðum fræðslu til að undirbúa fólk fyrir viðburðinn. Sævar veitir stjórnvöldum einnig ráðgjöf.
- Hvers vegna? Sólmyrkvar eiga sér stað fyrir merkilega tilviljun. Sólin er 400 sinnum lengra frá Jörðinni en tunglið en líka 400 sinnum stærri að þvermáli. Þar af leiðandi sýnast sólin og tunglið jafn stór á himninum eða 1/2 gráða. Þau passa fullkomlega saman – en aðeins ef uppröðunin er rétt.
- Þarf að vera heiðskírt? Ekki er nauðsynlegt að himinninn sé alveg heiðskír. Háskýjaslæða truflar ekki neitt en versta mögulega veður er þungbúið og rigning. Ef það versta gerist munum við samt sem áður upplifa nokkuð einstakt: Að myrkur skellur á í eina til tvær mínútur. Við fengjum að minnsta kosti helminginn af upplifuninni.
- Munur á almyrkva og deildarmyrkva. Almyrkvaslóðin er venjulega í kringum 200 km breið. Utan hennar sérðu aðeins deildarmyrkva, þ.e. þegar sólin er að hluta til myrkvuð. Deildarmyrkvar eru fallegir en ekki nándar nærri jafn tilkomumiklir og almyrkvar. Það er ekkert til sem heitir 99,9% almyrkvi. Þetta 0,1% sem upp á vantar jafngildir muninum á degi og nóttu. Vertu því alveg viss um að þú sért á réttum stað
- Sjaldséð almyrkvaslóð. Almyrkvi á sólu er sjaldséð sjón frá hverjum tilteknum stað á Jörðinni. Útreikningar sýna að 375 ár líða að meðaltali milli almyrkva frá tilteknum stað. Sem dæmi eru 593 ár almyrkvi sást síðast frá Reykjavík eða árið 1433.
- Fræðslugátt Sævars Helga: https://solmyrkvi2026.is/almyrkvi-a-solu-2026
Sértækt – Samhæfður undirbúningur stjórnvalda (blaðamannafundur)
- Stjórnvöld hafa unnið að samhæfðum undirbúningi aðgerða vegna almyrkvans – á vegum Almannavarna, stofnana, sveitarfélaga og ferðaþjónustunnar.
- Stýrihópur stjórnvalda á vegum forsætisráðuneytisins með þátttöku allra hagaðila.
- Aðgerðaáætlun fyrir landið og í einstökum landshlutum.
- Á öllum áhrifasvæðum er unnið að viðbúnaði, umferðarstýringu, móttöku gesta, náttúruvernd, og upplýsingagjöf.
- Öflugur undirbúningur og góð upplýsingagjöf er lykilforsenda þess að hægt verði að taka á móti miklum fjölda gesta með öruggum hætti.
- Fjölmargir opinberir aðilar gegna ríku hlutverki til að íbúar og gestir njóti upplifunarinnar á þessum merka degi. Meðal þeirra eru almannavarnir, lögreglan, Ferðamálastofa, Landhelgisgæslan, Landlæknisembættið, Landsbjörg, Náttúruverndarstofnun, Samgöngustofa, Veðurstofan, Vegagerðin, sveitarfélög, markaðsstofur landshluta og Íslandsstofa.