Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Könnun á áhrifum lokunar 2G- og 3G-farsímakerfa á ferðaþjónustu

Ferðamálastofa óskar eftir upplýsingum frá ferðaþjónustufyrirtækjum um reynslu þeirra af breytingum á farsímasambandi í kjölfar lokunar 2G- og 3G-farsímakerfa hér á landi.

Í því skyni hefur Ferðamálastofa sent út könnun sem ferðaþjónustufyrirtæki eru hvött til að svara.

Markmið könnunarinnar er að kanna hvort og með hvaða hætti lokun kerfanna hafi haft áhrif á starfsemi fyrirtækja, samskipti starfsfólks og öryggi ferðamanna. Sérstaklega er óskað eftir upplýsingum um dæmi, atvik eða aðstæður þar sem skert eða ófullnægjandi fjarskiptasamband hefur skapað vandamál eða haft áhrif á starfsemi og öryggi.

Svör verða ekki rekjanleg til einstakra fyrirtækja og verða eingöngu nýtt til að fá sem skýrasta heildarmynd af stöðunni. Niðurstöðurnar munu jafnframt nýtast við mat á því hvort þörf sé á frekari aðgerðum eða úrbótum á fjarskiptasambandi fyrir ferðaþjónustuna.

Ferðaþjónustufyrirtæki eru því hvött til að taka þátt og miðla reynslu sinni, hvort sem um er að ræða jákvæðar eða neikvæðar breytingar eftir lokun 2G og 3G-kerfanna.