Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Kynningarfundur vegna Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða 8. október

Ferðamálastofa heldur upplýsingafund á Teams fimmtudaginn 8. október kl. 13–15 fyrir væntanlega umsækjendur í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða. Umsóknarfrestur í sjóðinn er til kl. 13 þann 27. október 2026.

Á fundinum er meðal annars farið yfir:

  • Hverskonar verkefni eru styrkhæf og hver ekki.
  • Umsóknarferlið og umsóknareyðublað.
  • Áherslur ráðherra
  • Gæðamat sjóðsins og nýtt gæðamatsblað.
  • Hvernig er sótt um styrki úr sjóðnum?

Frekari upplýsingar og skráning er hér.