Markaðsstofa Vesturlands tekur þátt í Vestnorden í Nuuk
Vestnorden er samstarfsverkefni Íslands, Færeyja og Grænlands undir merkjum NATA – North Atlantic Tourism Association og er mikilvægur vettvangur fyrir tengslamyndun, viðskiptasambönd og samstarf milli ferðaþjónustuaðila á Norðurslóðum.
Kaupstefnan var haldin á Akureyri í fyrra, þá í 40. sinn, og sóttu hana um 550 gestir frá tæplega 30 löndum. Hún er einn stærsti og mikilvægasti viðburður ársins fyrir íslenska ferðaþjónustu og býður upp á einstakt tækifæri til að hitta erlenda samstarfsaðila og kynna fjölbreytt framboð íslenskra áfangastaða.
Þátttaka Markaðsstofu Vesturlands í Vestnorden er mikilvægur liður í því að kynna Vesturland sem spennandi áfangastað, styrkja tengsl við erlenda markaði og skapa ný viðskiptatækifæri fyrir ferðaþjónustuna á svæðinu.
Vestnorden hefur í gegnum tíðina reynst afar árangursrík kaupstefna og verður spennandi að taka þátt í viðburðinum í Nuuk og halda áfram að byggja upp tengsl og tækifæri fyrir ferðaþjónustu á Vesturlandi.