Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Menntamorgunn ferðaþjónustunnar 10. apríl í streymi

Hæfnisetur ferðaþjónustunnar, SAF og Markaðsstofur landshlutanna boða til Menntamorguns ferðaþjónustunnar í streymi 10. apríl kl. 9:00.
Hæfnisetur ferðaþjónustunnar, SAF og Markaðsstofur landshlutanna boða til Menntamorguns ferðaþjónustunnar í streymi 10. apríl kl. 9:00.
 
Á fundinum verður sjónum beint að undirbúningi vertíðar - vinnumarkaðsmálum og ráðningu sumarstarfsfólks, hvað einkennir árangursrík starfsviðtöl ásamt hugvekju um breyttar þarfir Z kynslóðar. 
 
Dagskrá:
  • Hvernig finnum við rétta aðilann í teymið? Góð ráð fyrir árangursrík atvinnuviðtöl
    - Stefanía Hildur Ásmundsdóttir, ráðgjafi hjá Hagvangi
  • Hvað ber að hafa í huga þegar sumarstarfsfólk er ráðið í vinnu?
    - Íris Mist Arnardóttir, lögfræðingur hjá SA
  • Ný kynslóð og aðrar væntingar
    - Erla Ósk Ásgeirsdóttir, framkvæmdastjóri sjálfbærni og menningar hjá Símanum og stjórnarmaður í Bláa Lóninu
  • Fræðsla og menning í fjölbreyttu starfsumhverfi
    - Eir Arnbjarnardóttir, mannauðsstjóri hjá Center Hotels
Fundarstjóri er Inga Hlín Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins
 
 SAF-logo-transparent