MICE-ferðaþjónusta skilaði 33 milljörðum í tekjur árið 2025
MICE-ferðamenn voru um 3,5 prósent allra erlendra ferðamanna sem heimsóttu Ísland árið 2025. Þrátt fyrir að vera tiltölulega lítill hluti ferðamanna stóð hópurinn undir um 7,5 prósentum af tekjum af erlendum ferðamönnum, þegar flug er undanskilið.
Eyða mun meira en meðalferðamaður
Samkvæmt greiningunni eru tekjur af hverjum ráðstefnugesti að meðaltali 2,3 sinnum hærri en af almennum ferðamanni. Gestir í hvataferðum skila enn meiri tekjum, eða tæplega þrefalt meiri tekjum á mann.
Greiningin byggir meðal annars á áætlunum Hagstofu Íslands um útgjöld erlendra ferðamanna. Þá kemur fram að meðaltekjur af MICE-ferðamönnum hafi aukist meira en tekjur af almennum ferðamönnum frá árinu 2022.
Getur dregið úr árstíðarsveiflu
MICE-ferðaþjónusta getur jafnframt haft áhrif á árstíðarsveiflu í íslenskri ferðaþjónustu. Samkvæmt KPMG eru álagspunktar MICE-ferðaþjónustunnar að stórum hluta utan hefðbundinnar háannar, sem getur hjálpað til við að jafna eftirspurn yfir árið.
Innviðir helsta hindrunin
Þrátt fyrir tækifærin eru ýmsar áskoranir til staðar. Samkvæmt greiningu KPMG eru takmarkanir í innviðum meðal helstu hindrana fyrir frekari vexti greinarinnar.
Þar er meðal annars bent á skort á viðeigandi aðstöðu fyrir stærri viðburði og hópa, svo sem stærri viðburðasölum og veitingarýmum. Þá séu einnig tækifæri til að efla samræmda og stöðuga markaðssetningu Íslands sem MICE-áfangastaðar.
Niðurstöður greiningarinnar voru kynntar á rýnifundi ferðaþjónustunnar þann 28. ágúst.
Hægt er að lesa frekar hér.