Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Mikilvægur upplýsingafundur vegna Almyrkvans

Miðvikudaginn 20.maí var haldin upplýsingafundur vegna almyrkvans en um var að ræða netfund í gegnum forritið Teams og var það Markaðsstofa Vesturlands sem boðaði fundinn til að miðla upplýsingum til samráðsvettvangs Vesturlands. Þar voru mætt fulltrúar lögreglunnar á Vesturlandi, HVE, Snæfellsjökulsþjóðgarði og frá sveitarfélögum á Vesturlandi en einnig voru þar þjónustuaðilar og áhugasamir íbúar sem vildu fá upplýsingar um almyrkvann.

Ásmundur Kristinn Ásmundsson lögreglustjórinn á Vesturlandi fór yfir hvernig gengi að manna fyrir almyrkvann, hversu sýnileg lögreglan myndi vera. “Þegar fólk kemur upp úr Hvalfjarðargöngunum mun það strax verða vart við lögreglu og eftir því sem nær dregur Snæfellsnesinu, verður viðvera lögreglu og björgunarsveita enn sýnilegri,” sagði Ásmundur á fundinum. Lögreglubílar, drónar og björgunarsveitir verða á stöðugri vakt en megináherslur verða meðal annars á að tryggja að fólk skilji að um einstefnu verði að ræða í og við Ólafsvík-Hellissand og Rif en önnur akreinin verður þá frátekin fyrir viðbragðsaðila, svo sem bíla þjóðgarðsins, lögreglu og björgunarsveit sem þurfa að komast greiðlega leiðar sinnar.

Sigurður E. Sigurðsson frá HVE nefndi að þótt umferðarástandið yrði aðeins tímabundið, þá væri fyrirsjáanlegt að umferð yrði mjög þung á þessum tíma. “Helstu áhyggjur heilbrigðisstofnunarinnar er ekki hraðaslys heldur að tryggja að viðbragðsaðilar og sjúkrabílar komist greiðlega til og frá vettvangi ef eitthvað kæmi upp á,” nefndi Sigurður og hrósaði lögreglunni fyrir góðan undirbúning í þeim efnum.

Ragnhildur Sigurðardóttir þjóðgarðsvörður Snæfellsjökulsþjóðgarðs fór svo yfir undirbúning vegna mikils gestafjölda á svæðinu en benti á að lengri opnunartímar verði á þjóðgarðsmiðstöðinni á Hellissandi og gestastofunni á Malarrifi vegna almyrkvans og að þjóðgarðurinn muni hafa eftirlit með innviðum, öryggi gesta og umferðarflæði. 23 starfsmenn verða að störfum fyrir þjóðgarðinn og 10 sjálfboðaliðar.

Kristján Guðmundsson frá Markaðsstofu Vesturlands fór svo yfir stöðuna varðandi upplýsingasíðu á heimasíðu Markaðsstofu Vesturlands sem er að taka á sig mynd en tók undir með Ragnhildi. “Að fólk velji sér staðsetningu tímanlega til að upplifa almyrkvann, fari varlega og mæti vel undirbúið”, nefndi Kristján.

Að lokum kom Dagbjartur Brynjarsson, sérfræðingur á sviði öryggismála frá Ferðamálastofu með nokkra punkta en hann benti á að meðalfjöldi erlendra ferðamanna á hverjum degi yfir sumartímann á Íslandi væri um 70.000. Gera mætti ráð fyrir svipuðum fjölda á þessu tímabili og jafnvel 70.000-100.000 ferðamönnum til viðbótar vegna almyrkvans.

Yfirlitsmynd/skipurit fyrir sólmyrkvasamráð