Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Mótvindur í ferðaþjónustu ræddur á fjölmennum fundi í Borgarnesi

„Mótvindur – eru stjórnvöld helsta hindrun ferðaþjónustu?“ var yfirskrift fundar um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í Norðvesturkjördæmi sem fram fór í Hjálmakletti í Borgarnesi 22. október. Fundurinn var haldinn í samstarfi Samtaka ferðaþjónustunnar, Markaðsstofu Vesturlands, Markaðsstofu Vestfjarða og Markaðsstofu Norðurlands og var vel sóttur af fulltrúum ferðaþjónustu, sveitarfélaga og stjórnmálaflokka.

Á fundinum var sjónum beint að rekstrarumhverfi ferðaþjónustunnar í ljósi efnahagsaðstæðna og fyrirhugaðra breytinga á sköttum og gjöldum sem nú liggja fyrir Alþingi. Rætt var um möguleg áhrif breytinganna á alþjóðlega samkeppnishæfni íslenskrar ferðaþjónustu, rekstur fyrirtækja, fjárfestingar, atvinnusköpun og byggðaþróun.

Frummælendur fundarins fjölluðu um ólíkar hliðar ferðaþjónustunnar, meðal annars hlutverk greinarinnar í verðmætasköpun, áhrif skattabreytinga, mikilvægi skemmtiferðaskipa fyrir landsbyggðina og horfur fyrir fjárfestingar á komandi árum.

Pétur Óskarsson, formaður SAF

Sölvi Guðmundsson, forstöðumaður Markaðsstofu Vestfjarða

 

Frímann Snær Guðmundsson, meðeigandi Deloitte á Íslandi

Ólafur Steinarsson, eigandi Krauma

Í síðari hluta fundarins fóru fram pallborðsumræður með þátttöku sex þingmanna, einum frá hverjum þingflokki á Alþingi, þar af fjórum þingmönnum Norðvesturkjördæmis. Fulltrúi Samtaka ferðaþjónustunnar stýrði umræðunum og fundargestum gafst jafnframt tækifæri til að beina fyrirspurnum til þingmannanna.

Í pallborðsumræðunum komu fram ólíkar pólitískar áherslur og hugmyndir um hvernig takast mætti á við þær efnahagslegu áskoranir sem íslenskt samfélag stendur frammi fyrir, meðal annars skuldir ríkissjóðs, hátt vaxtastig, uppsafnaða innviðaþörf og fjármögnun framtíðaruppbyggingar. Þingmennirnir lýstu mismunandi leiðum og áherslum við úrlausn þessara mála og áhrifum þeirra á atvinnulífið, þar á meðal ferðaþjónustuna.

Þingmenn til samtals á fundinum voru Arna Lára Jónsdóttir - Samfylkingin, Ingibjörg Davíðsdóttir - Miðflokkurinn, Sandra Sigurðardóttir - Viðreisn, Ólafur Adolfsson - Sjálfstæðisflokkurinn, Sigurjón Þórðarson - Flokkur fólksins, og Stefán Vagn Stefánsson - Framsóknarflokkurinn

Gestir fundarins

 

Spurningar úr sal

Skapti Örn Ólafsson, upplýsingafulltrúi SAF stjórnaði pallborðsumræðum

Fundurinn skapaði vettvang fyrir upplýsingamiðlun og skoðanaskipti milli fulltrúa ferðaþjónustunnar, stjórnmálamanna og annarra fundargesta. Vonir fundahaldara standa til að framsögurnar og umræðurnar og þau sjónarmið ferðaþjónustunnar sem þar komu fram nýtist þingmönnum í áframhaldandi störfum og við ákvarðanatöku um málefni sem varða framtíð ferðaþjónustunnar.

Hægt er að horfa á útsendingu SAF hér.