Ný alþjóðleg Visit Iceland herferð opnar tækifæri fyrir ferðaþjónustufyrirtæki
Íslensk ferðaþjónustufyrirtæki geta nú tekið þátt í nýrri alþjóðlegri markaðsherferð Visit Iceland, sem fer í loftið síðar í október. Herferðin er unnin af Íslandsstofu í samstarfi við markaðsstofur landshlutanna og SAF og beinist að mörkuðum í Bretlandi og Bandaríkjunum.
27.10.2026
Með þátttöku fá fyrirtæki aðgang að verkefnasíðu herferðarinnar og geta nýtt efni og áherslur hennar í eigin markaðsstarfi. Verkefnið er hluti af framtaksverkefninu Ferðaþjónusta til framtíðar sem hefur það að markmiði að styrkja samkeppnishæfni íslenskrar ferðaþjónustu.
Ferðaþjónustufyrirtæki eru hvött til að skrá sig og kynna sér verkefnið. Athygli er vakin á því að allt efni á verkefnasíðunni er trúnaðarmál þar til herferðin fer formlega í loftið og þurfa þátttakendur að samþykkja trúnaðaryfirlýsingu við skráningu.