Ný flugleið frá Portúgal opnar möguleg tækifæri fyrir Vesturland
Þessar fréttir eru sérstaklega jákvæðar fyrir ferðaþjónustu á Vesturlandi, þar sem portúgalski markaðurinn hefur verið í miklum vexti á undanförnum árum. Tölur frá Hagstofu Íslands sýna að gistinóttum portúgalskra ferðamanna á Vesturlandi hefur fjölgað verulega á því tímabili sem nýja flugleiðin mun starfa.
Á árunum 2020 til 2025 þróuðust gistinætur ferðamanna frá Portúgal á Vesturlandi á tímabilinu apríl til október með eftirfarandi hætti:
- 2020: 93 gistinætur
- 2021: 480 gistinætur
- 2022: 1.805 gistinætur
- 2023: 1.780 gistinætur
- 2024: 1.904 gistinætur
- 2025: 2.255 gistinætur
Árið 2025 féllu um þrír af hverjum fjórum gistinóttum portúgalskra ferðamanna á Vesturlandi innan þess tímabils sem TAP Air hyggst fljúga til landsins. Þróunin bendir til að eftirspurn frá þessum markaði sé þegar orðin umtalsverð og að nýja flugleiðin geti stutt enn frekari vöxt á komandi árum.
Með tengimiðstöð TAP Air í Lissabon skapast jafnframt ný tækifæri fyrir Vesturland til að ná til ferðamanna frá fleiri mörkuðum en Portúgal einum saman.
Nýja flugleiðin er því ekki aðeins góðar fréttir fyrir þá sem vilja ferðast milli Íslands og Portúgals heldur einnig mikilvægt tækifæri fyrir ferðaþjónustu á Vesturlandi til að styrkja stöðu sína á vaxandi og spennandi erlendum markaði.