Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Ný OECD-skýrsla dregur fram helstu áherslur í íslenskri ferðaþjónustu

Nýverið kom út skýrslan OECD Tourism Trends & Policies 2026, sem gefin er út annað hvert ár og veitir yfirgripsmikið yfirlit yfir þróun, stefnumótun og helstu tölur um ferðaþjónustu í aðildarríkjum OECD, þar á meðal Íslandi.

Í skýrslunni er lögð áhersla á mikilvægi þess að byggja upp samkeppnishæfa, sjálfbæra og seigla ferðaþjónustu. Sérstaklega er fjallað um hvernig auka megi samfélagslegan ávinning af ferðaþjónustu og styrkja viðnámsþol greinarinnar gagnvart loftslagsbreytingum og öfgafullum veðuratburðum.

Í umfjöllun um Ísland er farið yfir Ferðamálastefnu Íslands til 2030, sem hefur það að markmiði að gera Ísland að leiðandi áfangastað í sjálfbærri ferðaþjónustu. Meðal helstu aðgerða sem nefndar eru eru innleiðing auðlinda- og innviðagjalds á ferðamannastöðum í opinberri eigu, efling stjórnarhátta og stjórnsýslu ferðaþjónustunnar, auk bættrar umgjörðar um aðgengi, öryggi og stjórnun ferðamannastaða.

Skýrslan er mikilvægt viðmið fyrir stefnumótun í ferðaþjónustu og veitir jafnframt gagnlegan samanburð á þróun greinarinnar milli landa. Hún er því verðmæt heimild fyrir stjórnvöld, sveitarfélög og fyrirtæki sem starfa í íslenskri ferðaþjónustu.