Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Opinn fræðslufundur – Almyrkvi á sólu

Sævar Helgi Bragason mætir í þjóðgarðsmiðstöðina á Hellissandi, þriðjudaginn 12. maí og heldur opinn fræðslufund um Almyrkva á sólu sem mun eiga sér stað þann 12. ágúst 2026. Erindið er í boði Soroptimistaklúbbs Snæfellsness.

Almyrkvinn verður sjáanlegur frá Íslandi í fyrsta sinn síðan árið 1954. Almyrkvaslóðin liggur yfir Vestfirði, Snæfellsnes, Höfuðborgarsvæðið og Reykjanesskaga. Þetta verður fyrsti almyrkvinn sem sést frá Reykjavík síðan 17. júní 1433.

Fleiri upplýsingar eru inn á heimasíðu Snæfellsjökuls Þjóðgarðar