Samningur um umsjón samfélagsmiðla Visit West Iceland framlengdur
09.02.2026
Samningur um umsjón samfélagsmiðla Visit West Iceland framlengdur
Markaðsstofa Vesturlands hefur ákveðið að framlengja tilraunaverkefni um útvistun á samfélagsmiðlum sínum og samning við Haukey slf. um umsjón með miðlum Visit West Iceland um eitt ár. Samningurinn nær til umsjónar á Facebook- og Instagramsíðum MSV fyrir áfangastaðinn Vesturland, þar sem markmiðið er að umfjöllun og myndefni nái til erlendra markhópa sem áhuga hafa á að ferðast um Ísland.
Útvistunin hófst sem tilraunaverkefni í byrjun árs 2025 og hefur reynst afar vel. Fylgjendum á þessum samfélagsmiðlum hefur fjölgað jafnt og þétt allt árið og dreifing efnis aukist til muna, líkt og skjáskot af árangri verkefnisins sýna.
Verkefnisstjórn verður áfram í höndum Thelmu Harðardóttur, sem þekkir áfangastaðinn Vesturland vel, en hún starfaði hjá Markaðsstofu Vesturlands á árunum 2019–2022 og hefur einnig víðtæka reynslu af markaðssetningu áfangastaða.
Samningurinn fyrir árið 2026 var undirritaður nú á dögunum af Kristjáni Guðmundssyni, Markaðsstofu Vesturlands, og Thelmu Harðardóttur.
Aðstandendur Markaðsstofu Vesturlands er mjög ánægð með árangur verkefnisins og hlakkar til áframhaldandi samstarfs.
