Samráð um sjálfbæra ferðamálaþróun á dagskrá á Selfossi
Fundurinn er haldinn af Land- og ferðamálafræði Háskóla Íslands í samstarfi við Ferðamálastofu. Þar verða kynntar niðurstöður rannsóknarverkefnis sem fjallar um samstarf sveitarfélaga og áfangastaðastofa við sjálfbæra uppbyggingu ferðaþjónustu. Rannsóknin byggir á viðtölum við fulltrúa sveitarfélaga og áfangastaðastofa á Norðurlandi, Austurlandi, Suðurlandi og Reykjanesi, auk greiningar á svæðisbundnum áfangastaðaáætlunum.
Að kynningu lokinni fara fram pallborðsumræður um helstu áskoranir í svæðisbundnum ferðamálum og eftirfylgni stefnumótunar. Þar tekur meðal annars þátt Margrét Björk Guðmundsdóttir (Maggý), fagstjóri áfangastaða – og markaðsstofu Vesturlands.
Málstofan er ætluð sveitarfélögum, áfangastaðastofum, fyrirtækjum í ferðaþjónustu og öðrum sem áhuga hafa á þróun greinarinnar. Léttar veitingar verða í boði að dagskrá lokinni. Viðburðurinn er styrktur af Byggðarannsóknarsjóði.
Dagskrá
- 11:00 – Kynning á niðurstöðum rannsóknarverkefnisins, Íris Hrund Halldórsdóttir og Anna Karlsdóttir
- 12:00 – Pallborðsumræður um helstu áskoranir í svæðisbundnum ferðamálum og samvinnu um eftirfylgni stefnumótunar
- 13:00 – Viðburði lýkur og boðið verður upp á léttar veitingar
Fundurinn er opinn öllum áhugasömum um framtíð ferðamála og sjálfbæra þróun áfangastaða á Íslandi.
Hægt er kynna sér viðburðinn frekar hér.