Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Samstaða og samstarf á Vesturlandi – almyrkvi 2026

Almyrkvi 2026 verður lengi í minnum hafður, ekki aðeins vegna hins stórbrotna náttúruatburðar heldur einnig vegna þeirrar samstöðu og samvinnu sem lagði grunn að öruggri og góðri upplifun íbúa og gesta á Vesturlandi. Undirbúningur hófst vorið 2025 með það að markmiði að tryggja öryggi, stuðla að góðri upplifun og nýta tækifærið til að vekja athygli á Vesturlandi sem áhugaverðum áfangastað. Fljótlega varð ljóst að verkefnið yrði umfangsmikið og kallaði á víðtækt samstarf.

Samráðsvettvangur Vesturlands vegna sólmyrkva var stofnaður til að efla samhæfingu, upplýsingagjöf og samstarf við sveitarfélög, Snæfellsjökulsþjóðgarð, aðrar markaðsstofur landshlutanna, opinberra aðila, viðbragðsaðila, atvinnulíf, ferðaþjónustu og íbúa. Markmiðið var að skapa sameiginlega yfirsýn yfir undirbúninginn, samræma upplýsingamiðlun og stuðla að því að upplýsingar um aðgengi, aðstöðu og aðstæður á Vesturlandi væru skýrar og aðgengilegar í aðdraganda almyrkvans.

Markaðsstofa Vesturlands – áfangastaðastofa leiddi samráðsvettvanginn og hafði umsjón með fundum, upplýsingamiðlun og yfirsýn yfir stöðu verkefnisins. Ábyrgð á undirbúningi og framkvæmd einstakra aðgerða var hins vegar hjá þeim aðilum sem fara með viðkomandi málaflokka, þar á meðal sveitarfélögum, viðbragðsaðilum og öðrum stofnunum.

Á þeim 15 mánuðum sem undirbúningurinn stóð yfir voru haldnir fjölmargir samráðs- og vinnufundir auk kynninga fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðaþjónustuaðila. Unnið var markvisst að fræðslu og upplýsingamiðlun, kortlagningu útsýnisstaða, bílastæða og þjónustu, auk umferðar- og öryggismála. Viðbragðsaðilar lögðu jafnframt mikla vinnu í sameiginlegan undirbúning og viðbragðsáætlanir vegna þess aukna álags sem búast mátti við.

Þegar almyrkvinn gekk yfir miðvikudaginn 12. ágúst kom árangur þessa undirbúnings skýrt í ljós. Fjöldi gesta sótti Vesturland heim og sýndi dagurinn með skýrum hætti mikilvægi samvinnu og góðrar samhæfingar þegar samfélagið tekst á við stór verkefni.

Markaðsstofa Vesturlands færir öllum sem komu að undirbúningi og framkvæmd verkefnisins sínar bestu þakkir. Sérstakar þakkir færum við sveitarfélögum á Vesturlandi, Snæfellsjökulsþjóðgarði og starfsfólki þeirra, lögreglu, almannavörnum, björgunarsveitum, slökkviliðum, heilbrigðisþjónustu, Vegagerðinni og öðrum viðbragðsaðilum fyrir mikilvægt framlag til að gera þennan dag að góðri upplifun fyrir alla.

Við þökkum einnig ferðaþjónustuaðilum, fyrirtækjum, veitingastöðum, söfnum, félagasamtökum, landeigendum, fjölmiðlum og öðrum samstarfsaðilum fyrir þeirra þátt í verkefninu.

Síðast en ekki síst þökkum við íbúum Vesturlands fyrir þolinmæði, skilning, þátttöku og jákvætt viðhorf. Samstaða samfélagsins sýndi þann styrk sem býr í Vesturlandi þegar allir leggjast á eitt.

Takk fyrir – saman gerðum við almyrkva 2026 að eftirminnilegum degi.