Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Skemmtiferðaskip hafa áhrif víða um Snæfellsnes

Ný greining Teya á kortaveltu erlendra ferðamanna sýnir að komur skemmtiferðaskipa til Grundarfjarðar hafa umtalsverð áhrif á verslun og þjónustu, og áhrifin ná langt út fyrir hafnarbæinn sjálfan.

Samkvæmt greiningunni má rekja um 15% af erlendri kortaveltu sumarsins í Grundarfirði til skemmtiferðaskipa. Á þeim dögum sem skip eru í höfn eykst erlend kortavelta þar um 45% miðað við sambærilega daga án skips.

Áhrifin dreifast jafnframt um Snæfellsnes. Um 70% af aukningunni á skipadögum í Grundarfirði verður utan bæjarins, meðal annars í Stykkishólmi, Ólafsvík og annars staðar á Snæfellsnesi.

Greiningin byggir á kortaveltu með erlendum greiðslukortum hjá söluaðilum Teya og nær til meira en 1.900 skipakoma sumrin 2025 og 2026.

Lesa má greiningu Teya í heild hér.