Skemmtiferðaskip leggur í Akraneshöfn í fyrsta sinn í 5 ár
Skemmtiferðaskipið Le Bellot lagði við bryggju á Akranesi, þjóðhátíðardaginn 17.júní 2026. Skipið átti að sigla inn á Grundarfjörð en áform breyttust vegna veðurs.
01.07.2026
Skemmtiferðaskipið Le Bellot lagði við Akraneshöfn, miðvikudaginn 17. júní en skipið var komið við bakkann rétt fyrir 08:00 um morguninn og var í höfninni til 13:00.
Alls voru 250 farþegar um borð í skipinu og fengu farþegar að skoða það sem Akranes og nágrenni hafa uppá að bjóða.
Hægt er að skoða myndband af komu skipisins hér.