Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Skert farsímasamband getur haft áhrif á öryggi ferðamanna

Ferðamálastofa hefur kannað reynslu ferðaþjónustufyrirtækja af farsímasambandi í kjölfar lokunar 2G- og 3G-farsímakerfa.

Alls bárust 132 svör frá ferðaþjónustufyrirtækjum um land allt og benda niðurstöðurnar til þess að víða hafi orðið vart við skert og óstöðugra farsímasamband.

Fyrirtæki nefna meðal annars svæði þar sem farsímasamband nær ekki lengur til, óstöðugt samband, slit á símtölum og lélegt eða ekkert gagnasamband. Áhrifin geta verið sérstaklega mikil á afskekktum svæðum.

Í könnuninni koma jafnframt fram dæmi þar sem skert samband hefur torveldað samskipti vegna slysa, veikinda eða annarra óvæntra aðstæðna. Ferðamálastofa hefur fylgt niðurstöðunum eftir í samtali við hagaðila, meðal annars Fjarskiptastofu.

Lesa frétt Ferðamálastofu í heild