Skráning hafin á Mannamót Markaðsstofa landshlutanna
Ferðaþjónustuvikan 2027 framundan
Hápunktur vikunnar eru Mannamót Markaðsstofa landshlutanna, sem haldin verða í Kórnum í Kópavogi fimmtudaginn 28. janúar. Mannamót eru stærsti kynningar- og tengslamyndunarvettvangur landsbyggðarferðaþjónustunnar þar sem fyrirtæki kynna þjónustu sína fyrir ferðaþjónustufólki, ferðaskrifstofum og öðrum fagaðilum.
Fyrir ferðaþjónustuaðila á Vesturlandi eru Mannamót einstakt tækifæri til að kynna svæðið, mynda ný viðskiptatengsl og styrkja samstarf innan greinarinnar. Aðeins samstarfsfyrirtæki markaðsstofanna geta tekið þátt sem sýnendur en öllum er frjálst að sækja viðburðinn.


Formlegri dagskrá Ferðaþjónustuvikunnar lýkur með Mannamótum en daginn eftir fer fram MidAtlantic ferðakaupstefnan á vegum Icelandair, þar sem innlendir ferðaþjónustuaðilar funda með erlendum kaupendum og samstarfsaðilum.
Markaðsstofa Vesturlands hvetur fyrirtæki í ferðaþjónustu á Vesturlandi til að kynna sér dagskrána vel og nýta þau tækifæri sem felast í þessum mikilvægu dögum fyrir greinina.
Nánari upplýsingar um Ferðaþjónustuvikuna og Mannamót má finna á vefjum Ferðamálastofu og Markaðsstofa landshlutanna.