Snæfellsnes: 32 almenningssalerni opin allan sólarhringinn
Snæfellsnes: 32 almenningssalerni opin allan sólarhringinn
Nýjasta viðbótin í þessari þjónustu er glæsileg salernisaðstaða að Nesvegi 2 við höfnina í Grundarfirði, en þar hefur verið tekið í notkun nýtt þjónustuhús með 12 salernum, þremur skálum og sérsalerni fyrir fatlaða. Aðstaðan er opin allan sólarhringinn og þjónar bæði gestum skemmtiferðaskipa og öðrum ferðalöngum sem leggja leið sína um Snæfellsnes.
Þjónustuaðilar um allt Snæfellsnes leggja sig líka fram um að bjóða upp á góða aðstöðu og þjónustu fyrir ferðafólk og viðskiptavini sína.
Þessi frábæra aðstaða og metnaður í þjónustu við gesti sýnir að Snæfellingar leggja sig fram um að standa vel að móttöku ferðamanna og almennri þjónustu á svæðinu.
Almenningssalerni á Snæfellsnesi - staðsetning: |
fjöldi salerna: |
opnunartími: |
Gestastofa Snæfellsness – Breiðablik – |
8 |
24/7 – opið alla daga - allan sólarhringinn |
Arnarstapi – almenningssalerni v. Arnarstapaveg |
5 |
24/7 – opið alla daga - allan sólarhringinn |
Snæfellsjökulsþjóðgarður – Gestastofa Malarrifi |
3 |
Auglýstur opnunartími gestastofu alla daga |
- útisalerni Gestastofunni Malarrif |
2 |
24/7 – opið alla daga - allan sólarhringinn |
Snæfellsjökulsþjóðgarður – Djúpalónssandur |
- |
UNNIÐ AÐ ENDURBÓTUM |
Snæfellsjökulsþjóðgarður – Þjóðgarðsmiðstöð Hellissandi |
6 |
Auglýstur opnunartími alla daga |
- útisalerni Þjóðgarðsmiðstöð Hellissandi við Útnesveg |
4 |
24/7 – opið alla daga - allan sólarhringinn |
Grundarfjörður – v. Grundarfjarðarhöfn- |
12 |
24/7 – opið alla daga - allan sólarhringinn |
Íþróttamiðstöðin Stykkishólmi – aðgangur að salernum |
6 |
Opnunartími íþróttamiðstöðvar á hverjum tíma |
Stykkishólmur – v. Stykkishólshöfn – |
2 |
24/7 – opið alla daga - allan sólarhringinn |
Tafla: Alls eru um 50 almenningssalerni aðgengileg á Snæfellsnesi, þar af 32 sem opin eru allan sólarhringinn.