Stýrihópur vegna almyrkva heimsótti Vesturland
Hlutverk stýrihópsins er að afla upplýsinga og hafa yfirsýn yfir verkþætti sem tengjast atburðinum og tryggja samræmda nálgun og upplýsingagjöf ráðuneyta og stofnana auk sveitarfélaga.
Viktor Ingi Jakobsson verkefnisstjóri upplýsinga- og kynningarmála Borgarbyggðar tók á móti stýrihópnum og fulltrúum Vegagerðarinnar, HVE og lögreglunnar á Vesturlandi en Kristján Guðmundsson frá markaðsstofu Vesturlands stýrði umræðum.
Stýrihópurinn ásamt fulltrúum Markaðsstofu Vesturlands fóru því næst í hádegismat á Miðhraun í Eyja- og Miklaholtshrepp áður en ferðinni var heitið í Þjóðgarðsmiðstöðina á Hellissandi.
Þar fluttu Ragnhildur Sigurðardóttir þjóðgarðsvörður, Ingunn Ýr Angantýsdóttir þjónustufulltrúi og Eva Dögg Einarsdóttir yfirlandvörður erindi um skipulag fyrir almyrkvann í Snæfellsjökulsþjóðgarði. Kristinn Jónasson bæjarstjóri Snæfellsbæjar og Heimir Berg Vilhjálmsson markaðs- og upplýsingafulltrúi Snæfellsbæjar héldu að lokum erindi um skipulag Snæfellsbæjar áður en haldið var út og tekinn var stuttur göngutúr um hátíðarsvæði Iceland Eclipse sem haldin verður 11-15. ágúst.
Góðar umræður áttu sér stað, bæði í Borgarnesi og á Hellissandi, og verður vonandi til þess að innviðir og utanumhald verður með besta móti þegar almyrkvi á sólu verður sjáanlegur frá Íslandi í fyrsta sinn síðan 1954.



