Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Sumardagskrá í Snæfellsjökulsþjóðgarði

Nú er að hefjast sumardagskráin í Snæfellsjökulsþjóðgarði, þar sem boðið er upp á fjölbreytta fræðsludagskrá á tímabilinu frá 6. júní til 12. september. Landverðir bjóða upp á daglegar gönguferðir, barnastundir og dagsettar göngur sem henta gestum á öllum aldri.
Vikuleg dagskrá í þjóðgarðinum:
  • Mánudaga: Fræðsluganga frá Búðarkirkju að Frambúðum kl. 13:00.
  • Þriðjudaga, miðvikudaga, föstudaga, laugardaga og sunnudaga: Fræðsluganga frá Gestastofu á Malarrifi að Svalþúfu kl. 13:00.
  • Fimmtudaga: Barnastundir í Þjóðgarðsmiðstöðinni á Hellissandi kl. 11:00 (í júlí og ágúst).
Einnig verður boðið upp á sérstakar þemagöngur á völdum dögum í sumar – þær hefjast allar klukkan 10:30:
  • 6. júní: Alþjóðadagur hafsins – Hafið og við
  • 20. júní: Dagur hinna villtu blóma – Blómaganga um Rauðhól
  • 25. júní: Fuglaskoðun á Svalþúfu
  • 2. júlí: Sagan við ströndina – Djúpalón og Dritvík
  • 16. júlí: Mannlíf og minjar – Gufuskálar
  • 23. júlí: Fjallið og fjarlægðin – Ganga á Hreggnasa
  • 7. ágúst: Lífríki og leifar – Eyrar og Lambhagatjarnir
  • 13. ágúst: Öndverðaneshringurinn – lengri ganga
Við hvetjum alla til að heimsækja Snæfellsjökulsþjóðgarð í sumar og nýta sér þessa skemmtilegu og fjölbreyttu dagskrá og þá yndislegu náttúru sem þar er alltumlykjandi.
Nánari upplýsingar um dagskrána er á heimasíðu þjóðgarðsins: